Ísland er nú fullgildur aðili að IALA nýrri Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum (e. International Organization for Marine Aids to Navigation). Stofnunin tekur yfir hlutverk fyrri stofnunar og ber sömu skammstöfun.
Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að ritað hafi verið undir stofnsáttmála nýju alþjóðastofnunarinnar árið 2021.
„Fullgildingarskjöl voru afhent franska utanríkisráðuneytinu í september á þessu ári en samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi 9. október.“
Vitnað er í samninginn um að tilgangur stofnunarinnar sé að leiða saman ríkisstjórnir og stofnanir og fyrirtæki sem komi að reglusetningu, veitingu, viðhaldi eða starfrækslu leiðarmerkja til að vinna að eftirtöldum markmiðum:
- a) að hlúa að öruggri og skilvirkri för skipa með því að bæta og samhæfa leiðarmerki um heim allan til hagsbóta fyrir samfélag siglingaþjóða og verndun sjávarumhverfisins,
- b) að stuðla að aðgangi að tæknisamvinnu og uppbyggingu á getu í tengslum við öll málefni sem tengjast þróun og miðlun sérfræðiþekkingar, vísinda og tækni í tengslum við leiðarmerki,
- c) að hvetja til og greiða fyrir almennri upptöku hæstu framkvæmanlegu staðla í málefnum sem varða leiðarmerki og
- d) að gera kleift að skiptast á upplýsingum um málefni sem stofnunin er með til umfjöllunar.
Nýja stofnunin er sögð hafa tekið við hlutverki IALA, alþjóðasamtaka vitastofnana á sviði leiðsögu skipa og vita og verði framvegis alþjóðleg milliríkjastofnun undir sömu skammstöfun.
„Vegagerðin og forverar hennar hafa verið aðilar að IALA allt frá stofnun samtakanna árið 1957, þegar þáverandi Vita- og hafnamálastofnun var formlega boðið að vera stofnaðili að samtökunum.“