Talsverðar breytingar hafa orðið á fuglafánu Íslands á þeim sjötíu og þremur árum sem liðin eru frá upphafi vetrarfuglatalninga, að sögn Náttúrufræðistofnunar. Á þessum tíma hafi meðal annars starar og svartþrestir náð hér fótfestu.
Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar fer fram núna milli jóla og nýárs, helgina 27. til 28. desember. Markmið talningarinnar er að kanna fjölda og dreifingu einstakra fuglategunda á mismunandi landssvæðum, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar.
„Gögnin nýtast jafnframt til að meta breytingar á stofnstærð tiltekinna tegunda. Frá upphafi hafa fuglaáhugamenn gegnt lykilhlutverki í þessu verkefni og lagt því lið í sjálfboðavinnu.“
Fram kemur að stofnunin hafi um áratugaskeið skipulagt fuglatalningar um áramótin, en fyrsta talningin hafi farið fram 21. desember 1952, á stysta degi ársins. Síðan þá hafi talningarsvæðum fjölgað jafnt og þétt.
Alls hefur verið talið á um 370 svæðum og samanlagður fjöldi einstakra talninga nú sagður nema um sjö þúsundum. Svæðin eru á láglendi um allt land en flest þeirra eru við sjávarsíðuna þar sem mest er af fuglum á þessum árstíma.
„Heildarlengd strandlengjunnar innan talningarsvæða er um 2.000 km sem jafngildir um þriðjungi af strönd Íslands sem er 5.000–6.000 km löng.“
Í færslu Náttúrufræðistofnunar kemur fram að undanfarin ár hafi að jafnaði sést um eða yfir 80 fuglategundir í vetrarfuglatalningum.
„Um helmingur telst til staðfugla og vetrargesta en jafnframt koma reglulega fram ýmsir flækingsfuglar. Samtals hafa hátt á annað hundrað tegundir sést í þessum talningum. Æðarfugl hefur nær alltaf verið algengasta tegundin og sést víða með ströndum landsins.“
Fram kemur í færslu stofnunarinna að fólk sem áhuga hefur á að taka þátt í talningunni undir lok árs geti sett sig í samband við Svenju N.V. Auhage sem veiti nánari upplýsingar um talningarnar, skipulag þeirra og einstök talningarsvæði.
Áhugasamir geta einnig á vef Náttúrufræðistofnunar kynnt sér niðurstöður vetrarfuglatalninga 2002–2024 og skoðað kortasjá sem sýnir talningasvæði vetrarfuglatalninga.