Krónan tekur inn vörur Sælkerabúðarinnar

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar ásamt Hinriki Erni Lárussyni og Viktori Erni Andréssyni, eigendum Sælkerabúðarinnar.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar ásamt Hinriki Erni Lárussyni og Viktori Erni Andréssyni, eigendum Sælkerabúðarinnar á Bitruhálsi. Mynd/Rúnar Kristmannsson

Vörur frá Sælkerabúðinni eru nú fáanlegar í Snjallverslun Krónunnar og völdum verslunum Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu, auk verslana á Selfossi, Akranesi, Akureyri, Reyðarfirði og í Reykjanesbæ.

Í tilkynningu segir að með samstarfi fyrirtækjanna fá viðskiptavinir aðgengi að vörum sem hingað til hafi vara verið fáanlegar í Sælkerabúðinni á Bitruhálsi.

Fram kemur að Sælkerabúðin hafi verið opnuð um mitt ár 2020 af meistarakokkunum Hinriki Erni Lárussyni og Viktori Erni Andréssyni, sem hlotið hafi fjölda verðlauna í matreiðslukeppnum sem hluti af íslenska kokkalandsliðinu. Þeir séu spenntir fyrir samstarfinu, sem gerir þeim kleift að ná til mun stærri hóps viðskiptavina en áður.

Þá er haft eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að vöruframboð Sælkerabúðarinnar falli afar vel að stefnu Krónunnar um að bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval og geta mætt þörfum viðskiptavina.