Gagnaver atNorth Akureyri fékk umhverfisverðlaun

atNorth segir að hönnunarupplegg stækkunar gagnaversins á Akureyri og áherslur atNorth á að sameina umhverfisvernd og félagsleg og efnahagsleg áhrif til að tryggja sjálfbæran vöxt til langframa hafi ráðið úrslitum um verðlaunin.

ICE03 gagnaver atNorth á Akureyri.
ICE03, gagnaver atNorth á Akureyri. Mynd/atNorth

Gagnaversfyrirtækið atNorth fékk fyrir helgi umhverfisverðlaun Data Center Dynamics (DCD) fyrir nýstárlega og ábyrga hönnun gagnavers fyrirtækisins á Akureyri.

Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að það hafi í þessum flokki atti kappi við þrjú önnur alþjóðleg gagnaversfyrirtæki. Þá var gagnaver atNorth líka tilnefnt í flokki gagnaversverkefna ársins í Evrópu.

„Verðlaun DCD eru mjög virt í alþjóðlegum gagnaversiðnaði, en sum stærstu tæknifyrirtækja heims eru á meðal verðlaunahafa í gegnum árin,“ segir í tilkynningunni.

Verðlaunin voru veitt fyrir áþreifanlegan árangur við að draga úr umhverfisáhrifum gagnavera og afhent við hátíðlega athöfn á viðburði Data Center Dynamics í Lundúnum 10. desember síðastliðinn.

Chris Larsen, Tracey Pewtner og Howard Shutt
Fulltrúar atNorth við verðlaunaafhendingu DCD, þau Chris Larsen, Tracey Pewtner og Howard Shutt. Mynd/atNorth.

atNorth segir að hönnunarupplegg stækkunar gagnaversins á Akureyri og áherslur atNorth á að sameina umhverfisvernd og félagsleg og efnahagsleg áhrif til að tryggja sjálfbæran vöxt til langframa hafi ráðið úrslitum um verðlaunin.

Haft er eftir Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni, forstjóra atNorth, hjá fyrirtækinu sé mikil ánægja með að gagnaver þess á Akureyri hafi hlotið viðurkenningu fyrir jákvæð áhrif á staðbundið umhverfi sitt.

Til að tryggja sveigjanleika og langlífi iðnaðarins verði að nálgast þróun stafrænna innviða á nýjan hátt. 

„Gagnaver eru grunninnviðir nútímasamfélags, en uppbygging þeirra og rekstur hefur líka í för með sér margvísleg önnur áhrif og tækifæri, svo sem með nýtingu glatvarma, afleiddum störfum og beinni þátttöku í nærsamfélaginu,“ segir hann.

Heildræn nálgun á starfsemina, sem finna megi í hönnunaruppleggi atNorth, segir Eyjólfur Magnús leggja grunn að góðum samfélagsáhrifum gagnavera fyrirtækisins til lengri framtíðar.

Þá kemur fram í tilkynningu atNorth að gagnaverið á Akureyri njóti góðs af svölu loftslagi og endurnýjanlegri orku sem dragi töluvert úr orkunotkun við kælingu tölvubúnaðar gagnaversins.

Sömuleiðis hafi við byggingu þess verið notuð sjálfbær efni á borð við límtré í stað stálbita og íslensk steinull, auk þess sem gætt hafi verið að því að byggingar féllu vel að umhverfi og landslagi.

„Sömuleiðis gerir hönnun allra nýrra gagnavera atNorth ráð fyrir búnaði til endurnýtingar glatvarma, en á Akureyri á atNorth í samstarfi við sveitarfélagið um nýtingu varmans til samfélagsverkefna,“ segir í tilkynningunni.

atNorth er sagt horfa til fleiri þátta en umhverfisins því lagt sé upp með að framkvæmdir efli nærsamfélagið og efnahagslíf þess.

„Við byggingu fyrsta áfanga ICE03 á Akureyri komu yfir 90 prósent starfsmanna úr nærsamfélaginu og hefur fyrirtækið skuldbundið sig til staðbundinna ráðninga þar sem mögulegt er.“

Gagnaver atNorth á Akureyri hafi líka átt þátt í að Farice setti upp nýjan afhendingarstað þjónustu fyrir útlandasambönd á Akureyri, þaðan sem gögnum sé miðlað beint til Evrópu.

„Þetta eykur verulega öryggi og áreiðanleika fjarskipta á svæðinu öllu.“

Þannig hafi við veitingu verðlaunanna verið horft til þess að gagnaverið gagnist ekki eingöngu notendum þess heldur einnig nærsamfélaginu og hagkerfi þess. Það geri stækkun gagnaversins að raunverulegu fyrirmyndarverkefni fyrir gagnaver framtíðarinnar.