Sögusöfn og náttúrusöfn eru þær tegundir safna sem mestra vinsælda njóta samkvæmt nýjustu samantekt Hagstofunnar aðsókn safna hér á landi. Birtar hafa verið tölur yfir árin 2022 og 2023.
„Alls sóttu rúmlega 3,3 milljónir gesta söfn og skylda starfsemi á Íslandi árið 2023 samanborið við tæplega 3,2 milljónir árið áður og nam því aukningin um 2,3% á milli ára. Safnagestir voru flestir á höfuðborgarsvæðinu bæði árin, um 1,9 milljónir,“ segir í samantektinni.
Árið 2023 segir að sögusöfn og náttúrusöfn hafi fengið tæplega tæplega 1,4 milljónir gesta annars vegar og um eina milljón hins vegar.
„Fjölgun gesta á milli áranna 2022 og 2023 var hæst fyrir sögusöfn og nam um 12,6%. Sögusöfn og náttúrusöfn voru einnig mest heimsóttu söfnin á tímabilinu 2019-2023.“
Þá kemur fram að á milli 2021 og 2022 hafi heimsóknir aukist talsvert hjá öllum minjasöfnun, um 129,5 prósent hjá sögusöfnun, um 76,8 prósent hjá listasöfnum og um 122,9 prósent hjá náttúrusöfnun en einungis um tæpt prósent hjá dýragörðum.
„Heimsóknir drógust saman 2020-2021 en lítil breyting varð hins vegar á gestafjölda dýragarða.“
Ferðamenn eru stór hluti gestanna
Fram kemur að árið 2019 hafi erlendir gestir nánast verið tveir af hverjum þremur safnagestum eða 64 prósent.
„Ári síðar, þegar samkomu- og ferðatakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins voru í gildi, fækkaði safnaheimsóknum talsvert í heildina, sérstaklega á meðal erlendra gesta þar sem hlutfall þeirra af heildarfjölda lækkaði um 38,0 prósentustig, og varð einungis fjórðungur af öllum safnaheimsóknum það ár.“
Á milli áranna 2021 og 2022 hafi svo heimsóknir erlendra gesta í söfn aukist um 183 prósent og aftur farið yfir 60 prósent allra safnaheimsókna, um 60,9 prósent árið 2022 og 62,2 prósent árið 2023.
