Heimila flutning gæludýra í farþegarými flugvéla

Ákvæðum um hjálpar- og sprengjuleitarhunda í reglugerð um innflutning hunda og katta hefur einnig verið breytt þannig að framvegis er heimaeinangrun slíkra hunda heimil.

Köttur horfir til himins.
Köttur horfir til himins. Mynd/Sveta Pananto á Unsplash

Bann við flutningi gæludýra í farþegarými flugvéla hefur verið fellt úr gildi. Fram kemur í frétt atvinnuvegaráðuneytisins að reglunum hafi verið breytt með breytingu á reglugerð um innflutning hunda og katta.

„Til að flytja megi gæludýr til landsins þarf að vera fyrirliggjandi innflutningsleyfi sem Matvælastofnun gefur út. Við komu til landsins skulu dýrin einnig afhent til einangrunar samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar,“ segir jafnframt í frétt ráðuneytisins.

Þá hefur ákvæðum um hjálpar- og sprengjuleitarhunda einnig verið breytt þannig að framvegis sé heimaeinangrun slíkra hunda heimil.

Fram kemur að reglugerðardrögin hafi verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, en borist hafi ellefu umsagnir.

Breytingarnar á reglugerðinni eru sagðar mikilvægar út frá sjónarmiðum dýravelferðar, en dýr upplifi minni streitu og álag ef þau ferðist með eiganda sínum fremur en í farangursrými eða vöruflutningum.

„Breytingarnar eru jafnframt til samræmis við reglur víða erlendis þar sem flutningur gæludýra í farþegarými er heimill án þess að það bitni á smitvörnum, enda eru gæðakröfur og vottanir flugfélaga og yfirvalda skýrar.“

Breytingarnar eru einnig sagðar stuðla að auknum sveigjanleika fyrir gæludýraeigendur og tryggja áframhaldandi fjölbreytni og heilbrigði hunda- og kattategunda á Íslandi.

„Þannig er tekið tillit til hagsmuna gæludýra og eigenda þeirra auk þess að verndun genamengis hunda- og kattategunda er tryggð til framtíðar.“

Frekari upplýsingar um innflutning dýra er að finna á vef Matvælastofnunar.