Ný útgáfa gagnagrunns yfir örnefni Íslands kom út í byrjun mánaðarins og inniheldur nú rúmlega 193.000 staðsett örnefni.
Fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar að þetta sé fjórða útgáfa ársins því stöðugt bætist ný og yfirlesin örnefni við grunninn.
„Enn er þó mikið verk óunnið og er kallað eftir aðstoð staðkunnugra við að staðsetja fleiri örnefni,“ segir þar jafnframt.
Örnefnagrunnurinn er sagður miðlægur og lifandi gagnagrunnur sem heldi utan um íslensk örnefni og tengd gögn. Nýjar skráningar bætist jafnt og þétt við grunninn og birtist vikulega í kortasjám.
„Hjá stofnuninni sinna tveir starfsmenn viðhaldi og skráningu í hlutastarfi og veitir Árnastofnun sérfræðilega ráðgjöf þegar vafaatriði koma upp.“
Þá segir að þrátt fyrir reglulega og stöðuga vinnu bíði enn fjölmörg örnefni staðsetningar á kortum. Stofnunin fer því fram á aðstoð fólks sem þekkir vel til staðhátta og örnefna á sínu svæði og biður það að leggja sitt af mörkum við að bæta skráninguna.
„Til hliðsjónar má nýta örnefnaskrá á vefnum Nafnið.is og skrá örnefni í sérhönnuðum örnefnaritli eða fá útprentaðar gervitunglamyndir af jörðum sem fólk þekkir.“
Áhugasamir eru sagðir geta haft samband með tölvupósti. Frekari upplýsingar um skráð örnefni í umhverfi fólks má skoða í Örnefnasjá á vefnum og svo er líka að finna á vef Náttúrufræðistofnunar frekari upplýsingar um örnefni og örnefnaskráningu.
