31,4 milljarða króna halli var á vöruskiptum Íslands við útlönd í nýliðnum nóvembermánuði, samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Hallinn er minni en á sama tíma í fyrra.
Fluttar voru út vörur fyrir 71,1 milljarð króna og inn fyrir 102,5 milljarða samkvæmt tölunum.
„Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 31,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 37,6 milljarða króna í nóvember 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.“
Vöruviðskiptajöfnuðurinn í nýliðnum mánuði var því 6,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar.
„Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 487,8 milljarða króna sem er 79,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.“
Þá bendir Hagstofan á að verðmæti vöruútflutnings í nóvember 2025 hafi verið 10,1 milljarði króna minni en í nóvember 2024, eða sem svarar 12 prósentum.
Útflutningurinn hafi farið úr 81,3 milljörðum króna í 71,1 milljarð.
„Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 932,6 milljarðar króna og jókst um 13,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 1% á gengi hvors árs.“
Iðnaðarvörur eru sagðar hafa verið 53 prósent alls vöruútflutnings og að verðmæti þeirra hafi aukist um eitt prósent samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
„Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.“

„Verðmæti vöruinnflutnings nam 102,5 milljörðum króna í nóvember 2025 samanborið við 118,9 milljarða í nóvember 2024 og dróst saman um 16,4 milljarða eða 14%.“
Bent er á að verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili hafi verið 1.420,3 milljarðar króna og aukist um 93,5 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr, eða um sjö prósent á gengi hvors árs fyrir sig.
„Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum en aukning var á öðrum liðum innflutnings, mest á fjárfestingarvörum sem jukust um 37% eða 122,1 milljarð.“
Hagstofan segir að mikinn vöxt í fjárfestingavörum megi að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings á tölvubúnaði tengdum gagnaverum.