Embætti landlæknis og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hafa gert með sér samkomulag um aukið samstarf við útgáfu námsefnis á sviði félags- og tilfinningafærni barna og ungmenna í skólastarfi.
Fram kemur á vef landslæknis að tilefni samkomulagsins sé áhersla á eflingu félags- og tilfinningafærni í aðgerðaáætlun stjórnvalda til að fækka sjálfsvígum á Íslandi sem kynnt hafi verin í mars á þessu ári.
„Einn af áhersluþáttum alþjóðlegra sjálfsvígsforvarna er að efla félags- og tilfinningafærni barna og unglinga svo þau öðlist seiglu og færni til að takast á við áskoranir lífsins,“ segir þar.
Í íslensku aðgerðaáætluninni er þessi þáttur sagður tilgreindur í aðgerð um forvarnir og heilsueflingarstarf sem kveði á um að koma á formlegu samstarfi Embættis landlæknis og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu á þessu sviði.
„Markmið um að byggja markvisst upp félags- og tilfinningafærni barna og ungmenna er ekki aðeins liður í sjálfsvígsforvörnum heldur einnig í geðheilbrigðisstefnu og menntastefnu stjórnvalda til 2030.“
Fram kemur að í aðgerðaáætlun við geðheilbrigðisstefnu sé kveðið á um innleiðingu gagnreyndrar nálgunar í geðrækt í grunnskólum og í aðgerðaáætlun við menntastefnu sé lögð aukin áhersla á geðrækt og félags- og tilfinningafærni bæði í skólastarfi og í námi og starfsþróun kennara.
Embætti landlæknis og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu eru um árabil sögð hafa átt í farsælu samstarfi um lífsleiknikennslu og félags- og tilfinningafærni í skólum. Milli þeirra hafi myndast góð tengsl og traust sem nýst hafi báðum vel í vinnu með skólum landsins.
„Með nýja samkomulaginu er hins vegar stigið skref í átt að formlegra og markvissara samstarfi þannig að þekking beggja stofnana á þessu sviði nýtist sem best í þágu skólastarfs í landinu.“
Í umfjöllun landslæknisembættisins er það sagt von beggja að með samstarfinu skapist grunnur fyrir vandaða kennslu í félags- og tilfinningafærni í íslenskum skólum sem til framtíðar styðji samhliða við aukin gæði skólastarfs og bætta líðan barna og ungmenna.