Nýtt Tækni- og hugverkaráð SI hefur verið skipað

Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar voru 309 milljarðar króna á síðasta ári, en rúmlega 18 þúsund manns starfa í greininni á Íslandi.

Tækni- og hugverkaráð SI.
Tækni- og hugverkaráð SI. Á myndinni eru, talið frá vinstri, efri röð: Gunnar Sigurjónsson, Nanna Elísa Jakobsdóttir, Finnur Einarsson, Arndís Thorarensen, Halldór Kristjánsson, Hörður Harðarson, og Erla Tinna Stefánsdóttir. Neðri röð: Hlynur Ólafsson, Sigríður Mogensen, Guðmundur Árnason, Arna Harðardóttir, Hulda Hallgrímsdóttir, Úlfar Arnórsson, Bergþóra Halldórsdóttir og Róbert Helgason,. Á myndina vantar Gunnar Zoega, Írisi E. Gísladóttur, Önnu Katrínu Halldórsdóttur, og Sigurð Hannesson. Mynd/BIG

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox á Íslandi, var kjörin formaður Tækni- og hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins (SI) á ársfundi ráðsins sem fram fór í gær. Í tilkynningu samtakanna kemur jafnframt fram að nýir fulltrúar hafi verið skipaðir í ráðið á fundinum.

Í ráðinu sem er skipað til ársins 2027 sitja auk formanns og Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra SI, fulltrúar 15 aðildarfyrirtækja SI.

Það eru talin upp í tilkynningunni með nöfnum og starfsheitum:

  • Róbert Helgason, framkvæmdastjóri og stofnandi Fordæmi, Kot og Autoledger
  • Hörður Harðarson, forstöðumaður þróunarsviðs lyfjaframleiðsluferla og lyfjaforma Alvotech
  • Finnur Einarsson, rekstrarstjóri Epiendo Pharmaceuticals
  • Hlynur Ólafsson, advisor to CEO Kerecis
  • Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health
  • Úlfar Arnórsson, Senior Director, Product hjá JBT Marel
  • Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant
  • Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs
  • Íris Eva Gísladóttir, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Evolytes
  • Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Myrkur Games
  • Arndís Thorarensen, stofnandi og meðeigandi Júní Digital
  • Gunnar Zoega, forstjóri OK
  • Bergþóra Halldórsdóttir, Borealis Data Center
  • Gunnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknireksturs Sýnar
  • Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs CRI

„Tækni- og hugverkaráð SI hefur undanfarin ár verið vettvangur umræðu um stöðu tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi, greininga og margvíslegrar stefnumótunar. Tækni- og hugverkaiðnaður hefur fest sig í sessi sem fjórða stoð útflutnings Íslands,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að útflutningstekjur greinarinnar hafi verið 309 milljarðar króna á síðasta ári og að rúmlega 18 þúsund manns starfi í greininni á Íslandi.

„Tækni- og hugverkaiðnaður hefur vaxið jafnt og þétt á síðustu árum og hafa útflutningstekjur greinarinnar tvöfaldast á fimm árum. Innan iðnaðarins eru meðal annars fyrirtæki í líf- og heilbrigðistækni, menntatækni, upplýsingatækni, tölvuleikjaiðnaði og hátækniframleiðslu.“

Þá segir að á ársfundi ráðsins hafi verið farið yfir vöxt tækni- og hugverkaiðnaðar, samkeppnishæfni iðnaðarins hér á landi og stöðu alþjóðamála.

„Breytingar í alþjóðaviðskiptum og auknar tollahindranir kalla á að samkeppnishæfni Íslands verði efld enn frekar. Nýtt Tækni- og hugverkaráð SI áformar að vinna að frekari umbótum í starfsumhverfi fyrirtækja í hugverkaiðnaði og þeirri umgjörð sem nýsköpun er búin hér á landi.“