Hafa gefið tuttugu þúsund vöggugjafir

Núna er Vöggugjöf Lyfju veitt í ellefta sinn, en fyrirtækið byrjaði á slíkum gjöfum til nýbakaðra og verðandi foreldra árið 2020.

Fjórar barnshafandi konur með vöggugjöf frá Lyfju.
Þetta eru Auður, Katrín Ásta, Silja og Sandra sem eiga allar von á barni og hafa sótt Vöggugjöf Lyfju. Mynd/Lyfja

Heildarverðmæti vöggugjafa sem Lyfja hefur gefið verðandi og nýbökuðum foreldrum frá árinu 2020 nemur um 235 milljónum króna. Fram kemur að í vikunni hafi Lyfja opnað fyrir umsóknir um Vöggugjöf, en þetta sé í ellefta sinn sem slíkar gjafir eru afhentar verðandi og nýbökuðum foreldrum.

„Vöggugjöfin var fyrst veitt árið 2020 og frá þeim tíma hefur Lyfja dreift 20 þúsund gjöfum sem innihalda vörur sem koma að góðu gagni fyrstu mánuði barnsins,“ segir í tilkynningu Lyfju.

Markmið Vöggugjafar Lyfju er einna helst sagt að veita nýbökuðum foreldrum allt það helsta sem þarf fyrir nýfætt barnið og létta þannig undir á tímum þar sem stuðningur kemur sér vel.

„Hugmyndin að verkefninu fæddist í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Í ár hefur Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í umhverfislæknisfræði rýnt og valið þær húðvörur sem gefnar eru og séð til þess að þær séu án skaðlegra innihaldsefna fyrir bæði barnið og umhverfið.“

Haft er eftir Karen Ósk Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Lyfju, að markmið fyrirtækisins sé að sem flestir nýbakaðir foreldrar fái þessa vöggugjöf sem nýtist vel þegar nýr einstaklingur bætist í fjölskylduna, en árlega fæðist hér á landi um 4.300 börn.

„Aðsóknin er alltaf mikil og klárast gjafirnar oft stuttu eftir að við opnum fyrir skráningar. Það er því greinilegt að verðandi og nýbakaðir foreldrar kunna að meta framtakið og gleðjumst við yfir því að geta orðið að liði á þessum gleðilegu tímamótum í lífi fólks,“ segir hún.

Hægt er að sækja um Vöggugjöfina á vef Lyfju og val um að fá hana senda heim eða að sækja hana í næstu verslun Lyfju um land allt.