ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur samþykkt endurnýjun og breytingar á fyrirkomulagi ríkisaðstoðar Íslands til einkarekinna fjölmiðla.
Á vef eftirlitsstofnunarinnar kemur fram að íslenska ríkið hafi tilkynnti ESA um ríkisaðstoðina þann 17. nóvember síðastliðinn.
„ESA hefur metið áætlunina og komist að þeirri niðurstöðu að hún samrýmist reglum um ríkisstyrki EES og gerir engar athugasemdir við framkvæmd hennar,“ segir þar.
Fram kemur að áætlun Íslands miði að því að bæta starfsskilyrði fyrir einkarekna fjölmiðla með því að veita beina styrki þegar komi að framleiðslu og rekstri.
Þannig sé þeim gert kleift að halda áfram að miðla fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar.
„Um er er að ræða viðbragð við fjárhagslegum og rekstrarlegum erfiðleikum sem fjölmiðlamarkaðurinn á Íslandi hefur staðið frammi fyrir vegna breyttra markaðsaðstæðna, neytendahegðunar og tækninýjunga.“
Vísað er til þess að áætlunin nái yfir hluta rekstrarkostnaðar útgáfustaða fyrir síðastliðið ár og að aðstoðin sé greidd út einu sinni á ári.
Undir eldra fyrirkomulagi hafi verið veitt ríkisaðstoð fyrir hlutfall kostnaðar sem féll til á árunum 2020-2023.
„Íslensk stjórnvöld hafa framlengt áætlunina, sem gerir einkareknum fréttamiðlum einnig kleift að fá greiddan hluta kostnaðar sem þeir hafa á árinu 2024.“
Fram kemur að áætluð útgjöld vegna aðstoðarinnar nemi 500 milljónum króna.
Nánari útlistun er að finna í ákvörðun ESA.