ReSource International hefur í samstarfi við Vegagerðina lokið tilraunaverkefni þar sem háþróuð hitamyndavélatækni á dróna var nýtt til að vakta jarðhitasvæði.
„Verkefnið fór fram við Hveradali á Hellisheiði þar sem aukin jarðhitavirkni hefur komið fram á síðustu misserum,“ segir í umfjöllun á vef Vegagerðarinnar.
„Markmiðið var að þróa öruggar og hagkvæmar aðferðir til að fylgjast með hitabreytingum í jarðvegi og undirlagi, sem getur haft afgerandi þýðingu fyrir framkvæmdir og viðhald vegakerfisins.“
Jarðhiti kortlagður
Verkefninu er þannig lýst að dróna með hitamyndavél hafi verið flogið yfir afmarkaðan vegarkafla þrisvar sinnum á fjögurra mánaða tímabili.
Niðurstöðurnar hafi greinilega sýnt jarðhita í nágrenni vegarins, einkum nálægt skátahúsinu í Hveradölum.
„Þar mældist stöðugur hiti í vegöxlum, þó ekki væri um að ræða hitaflæði upp á yfirborð vegarins sjálfs. Þetta bendir til að jarðhitinn nái aðeins upp að ákveðinni hæð og hafi hingað til ekki haft áhrif á malbiksyfirborðið.“
Samanburður á hitamælingum úr drónanum og hefðbundnum hitamæli hafi sýnt, að þrátt fyrir ákveðnar skekkjur, séu mælingarnar áreiðanlegar og gefi góða mynd af hitadreifingu á svæðinu.
„Verkefnið sýndi jafnframt fram á að með endurteknu flugi er hægt að bera saman gögn yfir tíma og greina þróun jarðhitans.“
Vegagerðin segir þó ljóst að margir þættir, á borð við lofthita, vind og sólarljós, geti haft áhrif á niðurstöður og því þurfi að þróa aðferðir sem dragi úr slíkum ytri áhrifum.
Þörf sögð á reglubundinni vöktun
„Jarðhitasvæði geta skapað áskoranir í vegagerð og viðhaldi. Hitabreytingar geta haft áhrif á burðarþol og varanleika vega, auk þess sem jarðhitagufa getur valdið ófyrirséðum skemmdum.“
Með reglubundinni vöktun segir Vegagerðin að megi greina þróun fyrr og þannig fyrirbyggja óvæntar tafir og aukinn kostnað í framkvæmdum.
„Við sjáum mikla möguleika í þessari tækni, bæði fyrir verktaka og opinbera aðila. Með nákvæmri hitagreiningu getum við stuðlað að öruggari framkvæmdum og betri nýtingu fjármuna,“ hefur Vegagerðin eftir Nicolas Proietti, framkvæmdarstjóra ReSource International ehf.
Mikilvæg viðbót
Á vef Vegagerðarinnar segir að þó svo verkefnið hafi verið afmarkað í tíma, gefi það sterkar vísbendingar um að drónar með hitamyndavél gætu orðið mikilvæg viðbót í verkfærakistu þeirra sem vinna að vegagerð og jarðvinnu á jarðhitasvæðum.
Næstu skref eru sögð felast í að:
- Framkvæma fleiri mælingar með styttra millibili til að fá skýrari mynd af hitasveiflum
- Þróa nákvæmari aðferðir til að leiðrétta mæligögn og gera þau samanburðarhæf
- Kanna möguleika á notkun gervigreindar til að greina mynstur í hitabreytingum og spá fyrir um þróun jarðhita.
„Að sögn ReSource International ehf. mun þessi tækni ekki aðeins nýtast í rannsóknum heldur einnig í hagnýtri verkfræði, t.d. við hönnun nýrra vega, mat á áhættu og langtímavöktun innviða á jarðhitasvæðum.“
Eykur öryggi og hagkvæmni
Þá er verkefnið við Hveradali sagt sýna að með tiltölulega einfaldri drónatækni megi fá heildstæða yfirsýn yfir jarðhita á stórum svæðum á stuttum tíma.
„Með því að halda áfram þróun á þessari aðferðafræði getur Vegagerðin og aðrir framkvæmdaaðilar tryggt betri undirbúning, aukið öryggi vegfarenda og sparað verulegan kostnað í framtíðinni.“
Umfjöllunin á vef Vegagerðarinnar var upphaflega birt fjórða tölublaði Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar.