Greindu betur 2026 er landskeppni og undanfari Evrópsku tölfræðikeppninnar fyrir grunn- og framhaldsskólanemendur. Vakin er á því athygli á vef Hagstofu Íslands að nú sér hafin skráning í keppnina, en hún er opin unglingum á aldrinum 14 til 19 ára.
„Keppnin, sem er nú haldin í fimmta sinn, er þverfaglegt verkefni styrkt af Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins,“ segir á vef Hagstofunnar.
Tilgangur keppninnar er sagður að veita ungmennunum tækifæri til þess að efla hæfni sína í að nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt og getu sína til þess að taka upplýstar ákvarðanir.
Keppt er í tveimur aldursflokkum, en keppendur vinna saman í tveggja til þriggja manna liðum við að leysa verkefni unnin úr gögnum Hagstofu Íslands.
Svara þarf 30 spurningum sem á vef keppninnar eru sagðar „laufléttar krossaspurningar“ og útbúa glærukynningu úr gögnum Hagstofunnar. Verkefnin eru sögð kjörin sem samvinnuverkefni eða tímaverkefni í skólum.
„Sigurliðin í hvorum aldursflokki öðlast þátttökurétt í Evrópsku tölfræðikeppninni.“
Þá eru veitt peningaverðlaun til þeirra liða sem lenda í fyrsta til þriðja sæti í hverjum aldursflokki.
Skráning er opin til 13. janúar næstkomandi, en nánari upplýsingar um keppnina er að finna á vef hennar, www.greindubetur.is.