Happdrætti Háskólans vill hækka miðaverð um 15%

HHÍ hefur frá stofnun 1933 leikið stórt hlutverk í fjármögnun á uppbyggingu húsnæðis og kaupum á búnaði fyrir Háskóla Íslands.

Aðalbygging Háskóla Íslands.
Aðalbygging Háskóla Íslands. Mynd/Google Earth

Happdrætti Háskóla Íslands hefur farið fram á breytingar á reglugerð um starfsemi happdrættisins þannig að verð á stökum miða í útdrætti hækki um 15 prósent. Breytingin á að taka gildi um áramót.

„Lagt er til að verð hlutamiða verði 2.300 kr. í stað 2.000 kr. í hverjum mánaðarlegum útdrætti happdrættisins,“ segir í kynningu á breytingunni í samráðsgátt stjórnvalda.

Þá eru lagðar til breytingar á úthlutun vinninga sem varða leikina Milljón á mann og Milljónaveltuna.

„Lagt er til að hætt verði með leikinn Milljón á mann og að vinningsupphæð sem áður fór í þann leik færist yfir í Milljónaveltuna.“

Í leiknum Milljón á mann hafa verið dregin út fimm stök happdrættisnúmer sem hvert hefur hlotið eina milljón króna í vinning.

Í Milljónaveltunni hefur eitt númer hlotið 10 milljónir króna í hverjum útdrætti. Gangi sjá vinningur ekki út bætist upphæðin við útdrátt næsta mánaðar.

Eftir breytinguna verða verðlaunin í Milljónaveltunni 15 milljónir í hverjum útdrætti.

Happdrætti Háskólans hefur frá stofnun 1933 leikið stórt hlutverk í fjármögnun á uppbyggingu húsnæðis og kaupum á búnaði fyrir Háskóla Íslands.

„Það þýðir að húsnæði og tæki Háskólans eru ekki keypt fyrir skattfé, heldur að langstærstum hluta fyrir fé frá Happdrættinu,“ segir á vef HHÍ.

Þar kemur jafnframt fram að starfsemi HHÍ hafi fjármagnað nær allar byggingar Háskólans.

Hægt er að senda inn umsagnir við málið í samráðsgáttinni til 7. desember næstkomandi.