Flensutilfellum fjölgar hratt — Ekki of seint að bólusetja

Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur á tímabilinu október til mars.

Flensumynd, tebolli og snýtubréf.
Flensu þarf alla jafna að bíða af sér, en veikindin eru alla jafna meiri en í hefðbundnum umgangspestum. Mynd/Kelly Sikkema á Unsplash

Greiningum á inflúensu hefur fjölgað hratt undanfarið og mörg tilfelli greinast um þessar mundir. Hún er sögð tveimur til fjórum vikum fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Á vef landlæknisembættisins kemur jafnframt fram að lítið greinist af COVID-19 og að RSV faraldur sé ekki hafinn.

Áréttað er að ekki sé of seint fyrir einstaklinga í áhættuhópum að fara í bólusetningu og hvetur sóttvarnalæknir sérstaklega eftirtalda hópa til að þiggja bólusetningu sem fyrst:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
  • Öll börn og fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
  • Barnshafandi.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna hugsanlegs samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.

„Hægt er að bóka tíma í bólusetningu á mínum síðum á heilsuveru eða með því að hafa samband við sína heilsugæslustöð,“ segir í umfjölluninni.

Fram kemur að í viku 47 hafi greinst 86 tilfelli inflúensu, allt flensa af A-stofni.

„Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur á tímabilinu október til mars.“

Inflúensan er sögð valda mismiklum veikindum hjá einstaklingum en veikindin séu oft mun meiri og lengri en vegna flestra algengari öndunarfærasýkinga, að frátalinni RS veirusýkingu sem líka valdi oft miklum veikindum í yngstu og elstu aldurshópum.

„Þegar smit eru útbreidd í inflúensufaröldrum eykst álag á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður aukning á fjarvistum frá vinnu og skóla.“

Landlæknir segir árlega inflúensubólusetning gefa um 60 til 90 prósenta vörn gegn sýkingu, en bólusetning minnki einnig oftast veikindin ef fólk smitast.

„Sérstaklega ver bólusetning gegn alvarlegum veikindum og því er mikilvægt að einstaklingar í áhættuhópum þiggi bólusetningu ef það á við.“

Of snemmt sé að segja til um hversu vel bóluefnið í ár virki, en alltaf sé betra að þiggja bólusetningu heldur en ekki.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Þiggja inflúensubólusetningu ef það er í forgangs- eða áhættuhópi.
  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við.
  • Vera heima á meðan fólk hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga sé fólk með einkenni sýkingar.
  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
  • Þvo hendur oft og vel.
  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Frekari upplýsingar um inflúensu er að finna á vef embættis landlæknis.