Tólf mánaða verðbólga mælist 3,7 prósent í nóvember samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofu Íslands. Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,7 prósent.
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í þessum mánuði er sögð vera 658,2 stig og hafi lækkað um 0,48 prósent frá fyrri mánuði.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis mælist 523,4 stig og lækkar um 0,81 prósent frá því í október.
„Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 14,3% (áhrif á vísitöluna -0,31%), húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. lækkaði um 2,2% (-0,11%) og föt og skór lækkuðu um 2,7% (-0,10%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (0,10%).“
Þá vekur Hagstofan á því athygli á að áhrifa afsláttardaga í nóvember gæti meira að þessu sinni þar sem ekki sé einungis um að ræða tvo til þrjá daga eins og áður, heldur tilboð sem teygi sig yfir marga daga og jafnvel vikur í mánuðinum.
