
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, er í hópi þrjátíu og fjögurra ráðherra íþróttamála sem lýsa alvarlegum efasemdum um ákvörðun Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC) að falla frá takmörkunum á þátttöku Rússlands og Belarús á ólympíumóti fatlaðra.
Í frétt ráðuneytisins kemur fram að þrjátíu og þrjú ríki standi að yfirlýsingunni, ásamt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Yfirlýsingin er sögð koma í kjölfar kosningar aðildarfélaga IPC um að viðhalda ekki þeim takmörkunum sem settar hafi verið vegna innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu með stuðningi Belarús.
„Í yfirlýsingunni er bent á að árásir Rússa standi enn og sömuleiðis brot Rússa og Belarús á Ólympíusáttmálanum.“
Löndin eru sögð virða sjálfstæði og sjálfræði íþróttasamtaka og trúa á sameinandi kraft íþrótta og íþróttahreyfingar fatlaðra.
Bent er á að Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hafi 19. september síðastliðinn tilkynnt um óbreytta afstöðu sína um enga þátttöku undir merkjum Rússlands eða Belarús á vetrarólympíuleikunum í Mílanó Cortina 2026.
Vitnað er í IPC um að ólíklegt sé að nokkur íþróttamaður frá Rússlandi eða Belarús tryggi sér þátttökurétt á vetrarólympíuleikum fatlaðra í Mílanó Cortina 2026.
En í yfirlýsingunni sé kallað eftir skýringum um hvaða þýðingu ákvörðun aðildarfélaga IPC komi til með að hafa fyrir paralympíska íþróttaviðburði eftir vetrarólympíuleikana sem og fyrir þau svæði undir Ólympíunefnd Úkraínu sem Rússland hefur tímabundið hernumið.
„Jafnframt er skorað á alþjóðleg sérsambönd að fylgja afstöðu IOC og tryggja enga þátttöku undir merkjum Rússlands eða Belarús á íþróttaviðburðum á þeirra vegum.“