Vísitölur framleiðsluverðs og byggingarkostnaðar hækka

Byggingarkrani.
Byggingarkrani. Mynd/ÓKÁ

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,2 prósent frá fyrri mánuði í október síðstliðnum. Í nýjum tölum Hagstofu Íslands kemur fram að framleiðsluverð sjávarafurða hafi hækkað um 1,2 prósent og framleiðsluverð stóriðju um 1,6 prósent.

„Þá hækkaði framleiðsluverð á matvælum um 0,3%,“ segir Hagstofan.

Þá hefur Hagstofan birt síðustu tölur um vísitölu byggingarkostnaðar.

Í þessum mánuði er vísitala byggingarkostnaðar sögð vera 126,4 stig, sem sé hækkun um 0,4 prósent frá fyrri mánuði.

„Kostnaður við innflutt efni jókst um 0,1% á meðan verð á innlendu efni var óbreytt,“ segir í birtingu Hagstofunnar.

Þá hafi launakostnaður aukist um 1,0 prósent.