Launavísitala í október 2025 hækkaði um 0,2 prósent frá fyrri mánuði, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands.
„Á sama tíma hækkaði vísitala grunnlauna um 0,1%,“ segir þar.
Þá kemur fram að síðastliðna tólf mánuði hafi launavísitalan hækkað um 7,7 prósent og vísitala grunnlauna sömuleiðis um 7,7 prósent.