Meiri framleiðni mælist í byggingariðnaði hér á landi

Samkvæmt niðurstöðum nýlegrar skýrslu OECD er framleiðni á Íslandi heilt á litið há, þó að hún sé mismikil milli atvinnugreina.

Verkamenn að störfum við húsbyggingu.
Byggingarframkvæmdir. Mynd/Nik á Unsplash

Ný skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinn (OECD) sýnir að framleiðni í byggingariðnaði er hærri á Íslandi en í samanburðarlöndum. Í umfjöllun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) segir að í skýrslunni segi jafnframt að á meðan framleiðni hafi aukist á Íslandi undanfarinn áratug hafi hún dregist saman annars staðar.

„Vinnuaflseftirspurn í byggingariðnaði er meiri en í öðrum atvinnugreinum um þessar mundir og lausum störfum fækkaði lítillega á milli ára,“ segir HMS og vitnar í eigin mánaðarskýrslu fyrir nóvember 2025.

OECD skýrslan sem HMS vitnar til fjallar um framleiðni fyrirtækja á Íslandi.

„Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er framleiðni á Íslandi há heilt á litið, þó að hún sé mismikil milli atvinnugreina. Líkt og í mörgum öðrum OECD-löndum hefur þó hægt á framleiðnivexti undanfarna tvo áratugi.“

Framleiðni vinnuafls í byggingariðnaði er sögð á pari við meðalframleiðni í íslenska hagkerfinu, að því er fram komi í skýrslu OECD.

„Framleiðni vinnuafls í byggingariðnaði á Íslandi er hins vegar hærri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum og í öðrum OECD-löndum.“

Þá er framleiðni í byggingariðnaði jafnframt sögð hafa vaxið undanfarinn áratug hér á landi, á sama tíma og hún hafi dregist saman á hinum Norðurlöndunum og í öðrum OECD-löndum.

Eins kemur fram að óverulegar breytingar hafi orðið á eftirspurn eftir starfsfólki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð allra síðustu misseri, en lausum störfum í greininni hafi fækkað lítillega milli ára.

„Hlutfall lausra starfa í byggingariðnaði stendur nú í 6,6%, samanborið við 6,9% á sama tíma í fyrra. Samkvæmt fyrirtækjakönnun Gallup frá því í september er vinnuaflseftirspurn mest í byggingariðnaði, en þar telja 41% fyrirtækja skort vera á starfsfólki. Í öðrum atvinnugreinum er hlutfallið 5-27%.“

Umfjöllunina og mánaðrskýrslu er að finna á vef HMS.