Deila flugumferðarstjóra og Isavia fer í gerðardóm

Flugumferðarstjórar hafa verið samningslausir frá áramótum.

Mynd/Google Earth

Búið er að aflýsa boðuðu yfirvinnubanni flugumferðarstjóra í kjölfar samkomulags um að vísa kjaradeilu félagsmanna og Isavia í gerðardóm.

Í tilkynningu Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) kemur fram að komist hafi verið að þessari niðurstöðu á samningafundi hjá ríkissáttasemjara í dag.

Deilunni hafi verið vísað í gerðardóm í ljósi þess að lítið hafi þokast í kjaraviðræðum og sjónarmið FÍF sögð ítrekað hafa verið hunsuð.

„FÍF óttast þó að vísun kjaradeilunnar til gerðardóms, og niðurstaða hans, leiði ekki til fullnægjandi leiðréttingar á starfskjörum flugumferðarstjóra,“ segir í tilkynningunni.

Núverandi aðstæður eru sagðar einkennast af miklu álagi, manneklu, fáliðun og háum starfsaldri innan stéttarinnar, sem hafi neikvæð áhrif á þá mikilvægu þjónustu sem stéttin veiti flugrekendum á hverjum degi.

„Niðurstaðan er enn og aftur mikil vonbrigði. Flugumferðarstjórar hafa verið samningslausir frá áramótum sem meðal annars vinnur gegn hagsmunum Íslands sem Isavia hefur verið falið að uppfylla og þeirra fjölmörgu flugrekenda sem fara um íslenska og alþjóðlega flugstjórnarsvæðið.“

Viðvarandi fáliðun og mannekla hafi leitt til mikils álags og aukinnar yfirvinnu af hálfu flugumferðarstjóra.

„Takist Isavia ekki að manna vaktir, verður Ísland af mikilvægum gjaldeyristekjum þar sem beina þarf flugvélum frá íslenska flugstjórnarsvæðinu.“ 

Þá eru alþjóðlegir samningar sagðir standa undir launum flugumferðarstjóra að langmestu leyti.

„Í þessu samhengi skal einnig hafa í huga að íslensk flugumferðarstjórn er gjaldeyrisskapandi útflutningsatvinnuvegur sem skilar á milli 8 og 9 milljörðum króna í gjaldeyristekjur á ári hverju.“