Metfjöldi greininga á sýklalyfja ónæmri bakteríu, CPE, á síðasta ári vekur sérstakar áhyggjur sóttvarnalæknis. Árið 2018 greindust hér átján einstaklingar með slíka sýkingu.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í í frétt sóttvarnalæknis á vef Landlæknisembættisins í tilefni af því að dagurinn í dag, 18. nóvember, er sérstaklega helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC). Þá hefst líka í dag vitundarvika um sýklalyfjaónæmi á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
„Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsfólk og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum,“ segir þar.
Þróun mála á Íslandi
„Árið 2024 var notkun sýklalyfja hjá fólki svipuð og undanfarin ár en um þriðjungur landsmanna fékk að minnsta kosti eina sýklalyfjaávísun á árinu. Flestum sýklalyfjum var ávísað utan sjúkrahúsa, oftast af heimilislækni.“
Fram kemur að hér á landi sé notkun breiðvirkra sýklalyfja almennt lítil. Það er sagt jákvætt því breiðvirk sýklalyf stuðli frekar að auknu sýklalyfjaónæmi.
„Notkun sýklalyfja er mest hjá yngstu og elstu aldurshópunum.“
Þá segir að sýklalyfjaónæmi í bakteríum hér á landi sé almennt lítið miðað við mörg ríki Evrópu, þó aukning hafi orðið á vissum gerðum ónæmra sýkla.
Sérstakar áhyggjur veki fyrrnefnd aukning á karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE) á milli ára.
„Algengasta gerð tilkynningarskyldra ónæmra sýkla eru sýklar sem mynda breiðvirka beta-laktamasa (ESBL/AmpC), en þessi gerð ónæmra sýkla greinist oftast hjá eldra fólki, sérstaklega konum, og sérstaklega í tengslum við þvagfærasýkingar.“
Vitnað er í rannsókn á íslenskum hjúkrunarheimilum sem hafi sýnt að um sjö prósent íbúa tóku eitt eða fleiri sýklalyf á þeim tíma sem rannsóknin fór fram.
„Yfir helmingur af öllum sýklalyfjum voru gefin í fyrirbyggjandi tilgangi, sem er hátt í samanburði við önnur ESB/EES ríki. Þar af var nær helmingur til að fyrirbyggja þvagfærasýkingar.“
Staðan í Evrópu
Þá kemur fram að árlega fái 4,3 milljónir evrópskra sjúklinga að minnsta kosti eina sýkingu sem tengist heilbrigðisþjónustu („spítalasýkingu“) og margar séu vegna ónæmra sýkla.
„Á hverjum tíma eru um 7% sjúklinga á sjúkrahúsum í ESB/EES, eða einn af hverjum 14, með að minnsta kosti eina sýkingu sem tengist heilbrigðisþjónustu. Á hjúkrunarheimilum eru um 3% íbúa með að minnsta kosti eina slíka sýkingu.“
Ein af hverjum þremur örverum sem finnast í sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu í Evrópu eru sagðar bakteríur sem séu ónæmar fyrir mikilvægum sýklalyfjum. Það takmarki möguleika til að meðhöndla sýkingar.
„Á hverju ári deyja yfir 35.000 manns í ríkjum ESB/EES vegna sýkinga af völdum sýkla sem eru ónæmir gegn sýklalyfjum. Dánartíðni vegna þessara sýkinga er sambærileg við samanlagða dánartíðni inflúensu, berkla og HIV/alnæmis á svæðinu.“
Mikið starf óunnið hér á landi
Sóttvarnalæknir segir að þó staðan á Íslandi sé að mörgu leyti góð hvað varði notkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi sé mikið starf óunnið.
„Miklar vonir eru bundnar við innleiðingu nýlegrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda. Einnig er þátttaka í erlendu samstarfi mikilvæg en sóttvarnalæknir tekur meðal annars þátt í EU-JAMRAI-2 verkefninu sem er samstarf 30 ESB/EES ríkja um aðgerðir til þess að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.“
Frekari upplýsingar um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi er að finna á vef embættis landlæknis.