Versnandi horfur í útflutningi lita hagvöxt næstu ára

Reiknað er með að atvinnuvegafjárfesting aukist um 7,7 prósent í ár, sem rekja megi til mikillar fjárfestingar í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni, sérstaklega í búnaði með gervigreind sem notaður er í gagnaverum. Á næsta ári er svo búist við samdrætti vegna minni fjárfestingar í tölvubúnaði.

Hagstofa Íslands.
Hagstofa Íslands. Mynd/Google Earth

Útlit er fyrir að hagvöxtur verði 1,7 prósent í ár og 1,8 prósent á næsta ári samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Spáin, sem tekur til áranna 2025 til 2031, er birt í Hagtíðindum, ritröð Hagstofunnar.

„Reiknað er með að innlend eftirspurn verði helsti drifkraftur hagvaxtar í ár en að fjárfesting láti undan á næsta ári á meðan einkaneysla og samneysla vaxa áfram,“ segir þar.

Hagstofan segir versnandi horfur í útflutningi lita hagvöxt næstu ára.

Samkvæmt spánni er áætlað að aukning einkaneyslu verði 3,2 prósent að raunvirði í ár, en vísbendingar séu um aukin útgjöld einstaklinga á þriðja ársfjórðungi.

„Spáð er að einkaneysla aukist um 2,4% á næsta ári og um 3% árið 2027 samhliða auknum efnahagsumsvifum.“

Samneysla er sögð hafa aukist um 1,9 prósent árið 2024 og hlutfall hennar af vergri landsframleiðslu hafa verið 25,9 prósent. Í ár er gert ráð fyrir 1,7 prósent vexti og 1,2 prósent árið 2026, en hægari aukningu næstu ár.

Umsvif gagnavera telja

Þá er reiknað með að atvinnuvegafjárfesting aukist um 7,7 prósent í ár, sem rekja megi til mikillar fjárfestingar í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni, sérstaklega í búnaði með gervigreind sem notaður er í gagnaverum.

„Árið 2026 er svo búist við að atvinnuvegafjárfesting dragist saman um 7,7% vegna minni fjárfestingar í tölvubúnaði.“

Árið 2027 er spáð 1,3 prósenta vexti. Merki eru sögð um hægari umsvif í byggingariðnaði, þrátt fyrir aukningu í fjölda íbúða á lokastigi framkvæmda.

„Gert er ráð fyrir 0,9% vexti í ár, 0,8% á næsta ári og 4,7% árið 2027. Spáð er að fjárfesting hins opinbera aukist um 2,4% á yfirstandandi ári. Á fyrri hluta ársins jókst opinber fjárfesting um 6,1%, mest vegna ríkisins. Gert er ráð fyrir 7,9% vexti árið 2026, 4,4% árið 2027.“

Áföll marka horfur í utanríkisviðskiptum

Þá eru áföll í helstu útflutningsgreinum stóriðju og ferðaþjónustu á síðastliðnum mánuðum, auk minni aflaheimilda í uppsjávarveiði, sögð hafa áhrif á horfur í utanríkisviðskiptum.

„Áætlað er að útflutningur aukist um 1,4% í ár, um 0,1% árið 2026 og um 4,7% árið 2027.“

Innflutningur hafi verið öflugur á árinu en gert er ráð fyrir minni innflutningi vegna áfallanna í útflutningsgreinum.

„Búist er við að innflutningur aukist um 5,3% í ár en dragist saman um 3% á næsta ári. Útlit er fyrir að viðskiptahalli nemi um 2,4% af vergri landsframleiðslu í ár, að dragi úr honum þegar líður á spátímann og að jafnvægi náist undir lok hans.“

Verðbólga hjaðni með minnkandi umsvifum

„Verðbólga hefur reynst þrálátari en væntingar stóðu til. Í ár er reiknað með að vísitala neysluverðs hækki að meðaltali um 4,1% milli ára.“

Hagstofan gerir ráð fyrir að verðbólga hjaðni samhliða minni umsvifum í hagkerfinu og minnkandi spennu á vinnumarkaði, en árið 2026 er reiknað með að vísitala neysluverðs hækki um 3,5 prósent og um 2,7 prósent árið 2027.

Atvinnuleysishorfur hafa hins vegar versnað frá því í fyrri þjóðhagsspá Hagstofunnar í sumar og horfur á að það verði meira á þessu og næsta ári en gert var ráð fyrir.

„Vísbendingar eru um aukið jafnvægi á vinnumarkaði. Búist er við að atvinnuleysi nái hámarki í 4,3% á næsta ári og minnki þegar líða taki á spátímabilið.“

Skuldir heimila ekki mælst minni

Það sem af er ári segir Hagstofan vísitölu reglulegra launa á föstu verði hafa hækkað á milli ára, en á næstu árum er áætlað að hún hækki í samræmi við gildandi kjarasamninga.

„Skuldir heimila í hlutfalli við verga landsframleiðslu og ráðstöfunartekjur hafa ekki mælst minni undanfarin ár,“ segir Hagstofan.

Hlutfall vaxtagjalda heimila af ráðstöfunartekjum er sagt hafa haldist stöðugt síðastliðin tvö ár. Þá mælist vanskilahlutfall einkageirans hjá innlánsstofnunum nú lágt í sögulegum samanburði.

„Hrein erlend eignastaða hagkerfisins er sterk í sögulegum samanburði.“

Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 4. júlí og er næsta útgáfa fyrirhuguð í mars næstkomandi, en þessa spá má nálgast í heild sinni á PDF formi HÉR.