Jólagjöf og jólabíómynd ársins samkvæmt könnun ELKO

Í tengslum við jólakönnun ELKO bauðst fólki að tilnefna málefni sem því stendur nærri til styrkúthlutunar. Að þessu sinni hlýtur Ljósið styrk upp á eina milljón króna úr styrktarsjóði ELKO.

Mynd/samsett

Niðurstaða um jólagjöf ársins fékkst með nokkrum yfirburðum að þessu sinni í árvissri jólakönnun ELKO, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins.

Ninja Creami ísvélin er sögð hafa hlotið „afgerandi kosningu“ með 24 prósent atkvæða og taka við af snjallsímum sem verið hafi á toppi listans tvö ár í röð.

„Tæplega fjögur þúsund svör bárust í könnuninni sem send var á póstlista ELKO. Líkt og fyrri ár er markmiðið með könnuninni að grafast fyrir um jólagjöf ársins og leita um leið skemmtilegra upplýsinga um hefðir og jólahald landsmanna,“ segir í tilkynningunni.

Arinbjörn Hauksson
Arinbjörn Hauksson

„Á eftir ísvélinni koma símar, heyrnartól og snjallúr og svo komast LED andlitsgrímur á topp tuttugu listann í ár, en þar er um að ræða ljósameðferð sem á að stuðla að betri húð, draga úr hrukkum og jafnvel vinna á bólum,“ segir Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs ELKO. 

Þá er svokallaður loftsteikingarpottur, eða air fryer, enn á óskalistum fólks þrátt fyrir að svoleiðis tæki sé til á um 56 prósentum heimila.

Rúmur fimmtungur sagði svoleiðis pott ýmist á óskalistanum, eða að kominn væri tími á nýjan.

Þá er haft eftir Arinbirni að í könnun ELKO sé ávallt spurt um margvíslegar hliðar jólahaldsins. Meðal þess sem komið hafi í ljós sé að rúmir tveir fimmtu hefji jólainnkaupin í nóvember og telur hann líklegt að þar gæti áhrifa af afsláttardögum í mánuðinum.

„Svo segjast um 12% með augun opin og kaupa jólagjafir allan ársins hring.“

Þá segist um fimmtungur fullorðinna fá í skóinn á aðfangadag. Sjötíu prósent setja upp gervitré og rúmur fimmtungur lifandi tré. Þá séu bara um sjö prósent sem ekki segist setja upp jólatré.

„Tæpur helmingur gefur tíu gjafir eða fleiri og rúmur fimmtungur áætlar að verja 100 til 150 þúsund krónum í gjafirnar. Um 26% segjast munu verja yfir 150 þúsund krónum og um 5% landsmanna segjast munu verja jólunum erlendis í ár,“ segir í tilkynningunni.

Þá hafi komið í ljós að Home Alone sé vinsælasta jólamyndin með um 26 prósent atkvæða.

„Þar á eftir koma rómantíska jólagamanmyndin Holiday með 15% og svo Christmas Vacation með 13% en niðurstaðan er unnin út frá opinni spurningu. Athygli vekur að Die Hard situr í 5. sæti listans og ævintýramyndirnar byggðar á Hringadróttinssögu eru meðal topp tíu, en þær voru allar frumsýndar á milli jóla og nýárs og ljóst að áhorf á þær hefur sterka tengingu við jólatímabilið.“

ELKO upplýsir að fólki hafi, í tengslum við könnunina, jafnframt boðist að tilnefna málefni til styrkúthlutunar sem því standi nærri. Að þessu sinni sé það Ljósið sem í mánuðinum hljóti styrk upp á eina milljón króna úr styrktarsjóði ELKO.