„Í leiðara er ranglega haldið fram að undirritaður hafi lagt til að Ríkisútvarpið stofnaði félagsmiðil til að efna til samkeppni við Facebook,“ segir Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins, í athugasemd sem hann sendi ritstjórn Morgunblaðsins vegna leiðara sem birtist í blaðinu sl. laugardag.
„Þetta hefur undirritaður aldrei sagt. Ríkisútvarpið starfar samkvæmt lögum um útvarp í almannaþágu og þar er að finna lýsingu á hlutverki þess, auk þess sem þjónustusamningur við menningarráðuneytið útfærir þjónstukröfur til Ríkisútvarpsins. Ekkert líkt því sem leiðarahöfundur lætur að liggja er þar að finna,“ segir Stefán Jón.
„Ef stjórnarformaðurinn hefði lesið leiðarann betur sæi hann að athugasemdin er á misskilningi byggð,“ segir í athugasemd ritstjóra Morgunblaðsins við athugasemd Stefáns Jóns. Og þar er vitnað orðrétt í leiðarann þar sem sagði:
„Gagnlegt er að spyrja sig hvort eðlilegt þætti að ríkið […] stofnaði félagsmiðil til að keppa við Facebook, eins og stjórnarformaður Rúv. ohf. stakk upp á um liðna helgi!“
Ritstjórinn segir að í tilvitnuðum texta sé ríkið nefnt til sögunnar, ekki Ríkisútvarpið, þótt það kunni að vera ríki í ríkinu. Tilefni þeirra orða væri augljóst, en í viðtali við Stefán Jón í Sprengisandi á Bylgjunni 2. nóvember sagði hann orðrétt samkvæmt Morgunblaðinu:
„Síðan þurfum við að fá á Íslandi – og nú veit ég að mörgum bregður í brún – íslenska Facebook, boðveitu Íslands, sem er ekki rekin af fjarskiptafyrirtækjum, heldur af mönnum eins og mér og Sigurði og Kristjáni [annar viðmælandi og þáttarstjórnandi Sprengisands], sem við setjum upp … Það þarf íslenska Facebook, sem er ekki ritstýrt af erlendum auðmönnum. Og hún á að vera boðveita fyrir það sem Youtube, Facebook og Instagram gera – fólk getur verið þar áfram – en við á Íslandi þurfum að fá fyrir svona fólk eins og Gímaldið, Samstöðina, Heimildina … Þorstein Joð og það efni sem er búið til á Bylgjunni og inni á Ríkisútvarpinu. Allt á einn stóran „platform“, þ.e.a.s. vettvang, þar sem rafræn miðlun með innbyggðri gervigreind virkar. Þetta er stórhuga hugmynd …“
Eftir þessa ræðu spyr Kristján Kristjánsson, þáttarstjórnandi Sprengisands, hver eigi að koma þessu af stað?
„Sko, ég held að eðlilegt væri, ef það væri ekki þessi svakalega molbúaárátta gegn Ríkisútvarpinu í pólitíkinni – Ríkisútvarpið má ekkert gera, við erum algerlega njörvuð niður – þá væri þetta eðlilegt hlutverk fyrir Ríkisútvarpið að búa bara til sérstaka boðveitu. Við megum það ekki. Þess vegna þarf bæði einkaframtak, félagasamtök og hið opinbera að koma að stofnun sjálfstæðs, óháðs vettvangs, sem hefur ekki beint miðstýrt ritstjórnarvald, heldur dreifiafl fyrir íslenska miðla.“
„Lesendum er eftirlátið að dæma um hvað Stefán Jón var að fara með þeim orðum öllum um íslenska Facebook, Ríkisútvarpið og hið opinbera,“ segir að endingu í athugasemd ritstjórans.