Gert ráð fyrir að losun Íslands dragist saman um 27,1 prósent

Ísland og Noregur, líkt og Evrópusambandið, hafa hækkað loftslagsmarkmið sín fyrir árið 2030 samkvæmt Parísarsáttmálanum. Þessar nýju skuldbindingar hafa ekki verið teknar upp í EES-samninginn.

Skýrsla ESA um árangur Íslands og Noregs við að ná loftslagsmarkmiðum.

Ísland sýnir árangur í átt að loftslagsmarkmiðum fyrir árið 2030 samkvæmt skuldbingingum EES-samningsins.

Þetta kemur fram í frétt Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um útgáfu fimmtu ársskýrslu stofnunarinnar um árangur Íslands og Noregs við að ná þeim markmiðum sem ríkin hafa sett sér um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Í skýrslunni kemur fram að Ísland og Noregur hafi náð góðum árangri í átt að markmiðum sínum um samdrátt í losun í þeim geirum sem falli undir reglugerð um sameiginlega ábyrgð (e. Effort Sharing Regulation, ESR).

Þessir geirar eru sagðir ná til losunar frá byggingum, landbúnaði, samgöngum innanlands, minni iðnaði og úrgangi.

„Samkvæmt EES-löggjöf er Noregur með markmið um að draga úr losun í þessum geirum um 40% og Ísland um 29% til ársins 2030 samanborið við árið 2005.“

Helstu niðurstöður eru:

  • Gert er ráð fyrir að Ísland og Noregur nái núverandi markmiðum sínum fyrir geira sem falla undir reglugerðina um sameiginlega ábyrgð, þegar tekið er mið af áhrifum nýrra aðgerða sem eru í undirbúningi og þeirra sveigjanleika sem í boði eru.
  • Losun gróðurhúsalofttegunda í Noregi dróst saman um 2,9% árið 2024 miðað við árið 2023, og um 18,4% miðað við árið 2005
  • Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi jókst um 2,1% árið 2024 miðað við árið 2023, og er 7,7% lægri en hún var árið 2005.
  • Samkvæmt áætlunum, sem innihalda fyrirhugaðar aðgerðir, sem sendar voru ESA í mars 2025, er gert ráð fyrir að losun dragist saman um 48,7% í Noregi og 27,1% á Íslandi árið 2030 miðað við árið 2005.
  • Gert er ráð fyrir að Noregur þurfi að grípa til aðgerða til að uppfylla skuldbindingar sínar í landnotkunar- og skógræktargeiranum.

Áskoranir fram undan séu þó einkum tvær.

Tryggja þurfi að núverandi og fyrirhugaðar aðgerðir verði innleiddar á skilvirkan og tímanlegan hátt til að ná markmiðum EES.

Í öðru lagi endurspegli núverandi markmið EES ekki að fullu aukinn metnað landanna samkvæmt Parísarsáttmálanum.

„Bæði löndin þurfa því að efla viðleitni sína til að uppfylla hert loftslagsmarkmið sín fyrir árið 2030.“

Reglugerðin um sameiginlega ábyrgð (ESR) er sögð setja bindandi markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030.

„Reglugerðin um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF) kveður á um að ríkin tryggi að losun frá þessum geirum sé að minnsta kosti jöfnuð út með samsvarandi bindingu koltvísýrings (CO₂) úr andrúmslofti.“

Þá er bent á að bæði Ísland og Noregur, líkt og Evrópusambandið, hafi hækkað loftslagsmarkmið sín fyrir árið 2030 samkvæmt Parísarsáttmálanum.

Þessar nýju skuldbindingar hafi þó enn ekki verið teknar upp í EES-samninginn.

„Þar sem ESA hefur það hlutverk að meta framfarir Íslands og Noregs gagnvart markmiðum sem eru enn í gildi samkvæmt EES-löggjöf, byggir skýrslan á markmiðum sem endurspegla fyrri skuldbindingar samkvæmt Parísarsáttmálanum. það er að draga úr losun um að minnsta kosti 40% fyrir árið 2030 miðað við árið 1990.“

Skýrsla ESA er aðgengileg hér.