Á J-daginn kemur út nýr jólabjór Ölgerðarinnar

Í kjölfar þess að Ölgerðin fékk sérstaka gæðaviðurkenningu og var valin „besti samstarfsbruggari“ Carlsberg Group var farið í nýsköpunarverkefni undir vörumerki Tuborg og Lille Jul varð til.

Nýi jólabjórinn og Helga Kristín Gunnlaugsdóttir, vörumerkjastjóri Tuborg hjá Ölgerðinni.
Nýi jólabjórinn og Helga Kristín Gunnlaugsdóttir, vörumerkjastjóri Tuborg hjá Ölgerðinni. Mynd/Ölgerðin-samsett

J-dagurinn svokallaði, sem einhverjir fagna næstkomandi föstudag, markar með formlegum hætti upphaf sölu á Tuborg jólabjórnum á öldurhúsum og veitingastöðum landsins. Í tilkynningu Ölgerðarinnar segir að jólabjór Tuborg sé „langlanglangvinsælasti“ jólabjór landsins.

„Í ár fellur jólasnjórinn hins vegar tvöfalt, því auk hins sívinsæla og klassíska jólabjórs, bætist nú við nýr jólabjór, Tuborg Lille Jul,“ segir þar jafnframt.

Haft er eftir Helgu Kristínu Gunnlaugsdóttur, vörumerkjastjóri Tuborg, að samstarf Ölgerðarinnar við Carlsberg, sem meðal annars á Tuborg vörumerkið, hafi verið langt og farsælt og að saga bjóra þeirra sé samofin íslenskri bjórmenningu.  

„Eins og þjóðin þekkir hafa bjórarnir Tuborg og Carlsberg, sem eru bruggaðir hérlendis, verið meðal vinsælustu erlendu bjórvörumerkja hér á landi áratugum saman.  Carlsberg hefur undanfarin ár fylgst vel með þeim góða árangri sem við höfum verið að ná á bjórmarkaði og sérstaklega veitt vöruþróun okkar athygli. Því var ákveðið að taka sambandið á næsta stig í ár,“ segir hún.

Í kjölfar þess að Ölgerðin fékk sérstaka gæðaviðurkenningu og var valin „besti samstarfsbruggari“ (best in brew) af Carlsberg Group fyrr á árinu, hafi verið ákveðið að fara í nýsköpunarverkefni undir Tuborg vörumerkinu og niðurstaðan orðið nýr jólabjór sem kallast Tuborg Lille Jul.

Bjórinn er segður ákveðin framlenging af Tuborg Julebryg nema hvað hann sé með minna áfengismagn, glútenfrír og að framboð verði takmarkað. 

„Einn grunnþáttur í starfsemi Ölgerðarinnar er nýsköpun og vörurþróun og Tuborg Lille Jul er hluti af þeirri stoð, enda hefur Ölgerðin lengi verið í fararbroddi þegar kemur að fjölbreyttu vöruúrvali og nýjungum sem endurspeglar styrk fyrirtækisins á íslenskum drykkjarmarkaði.“

Helga Kristín segir ótrúlegur heiður fyrir Ölgerðina að vera treyst fyrir verkefni sem þessu.