Segja hagvaxtar- og verðbólguhorfur hafa versnað

Meðal þess sem spilar inn í breytta spá er tímabundinn samdráttur í álframleiðslu vegna framleiðsluskerðingar hjá Norðuráli, ládeyða í kísilmálmframleiðslu, útlit fyrir rýrari uppsjávarveiðar og áhrif falls flugfélagsins Play og hás raungengis krónunnar á ferðaþjónustuna.

Gámur, lyftari, Vestmannaeyjar, Samskip, Eimskip
Gámaflutningur í Vestmannaeyjahöfn. Mynd/ÓKÁ

Neikvæðar fréttir af hinum ýmsu útflutningsgreinum hafa aukið hættuna á bakslagi í útflutningi á komandi fjórðungum, að því er fram kemur í nýrri umfjöllun Greiningar Íslandsbanka. Fram kemur að fyrir vikið gæti hagvöxtur orðið talsvert minni á næsta ári.

„Íslenska hagkerfið er lítið, opið hagkerfi þar sem útflutningur vöru og þjónustu leikur stórt hlutverk í þeirri hagsæld sem hér hefur skapast undanfarna áratugi. Undanfarnar vikur og mánuði hafa neikvæð tíðindi borist frá hinum ýmsu útflutningsgreinum sem kunna að breyta myndinni fyrir hagþróun komandi missera nokkuð,“ segir þar.

Greiningardeildarin dregur svo upp mynd af því hvernig horfu gætu hafa breyst frá því bankinn gaf síðast út þjóðhagsspá.

Gert er ráð fyrir að hagvöxtur gæti orðið í kring um 0,8 prósent á næsta ári í stað þess 1,7 prósenta vaxtar sem bankinn spáði í lok september. Útflutningur vöru og þjónustu er talinn geta skroppið saman um tvö til þrjú prósent í stað þriggja prósenta vaxtar sem hafi verið spáð.

„Gjaldeyrisflæði vegna utanríkisviðskipta yrði nokkuð óhagstæðara og því eru líkur á heldur veikari krónu fyrir vikið en í grunnspánni. Það myndi tímabundið ýta upp verðbólgu en að sama skapi myndu minni efnahagsumsvif minnka eftirspurnarverðbólgu á komandi misserum.“

Þá er gert ráð fyrir öllu meira atvinnuleysi, hægari vexti umsvifa heimilanna og að fyrirtæki sem byggi á innlendri eftirspurn komi til með að stíga frekar á bremsuna en ella.

„Áhrifin á stýrivexti Seðlabankans fara á endanum eftir því hversu þrálát innflutt verðbólga myndi reynast og ekki síður hinu hvort verðbólguvæntingar tækju meira mið af tímabundnu verðbólguskoti eða hvort væntingar um minni verðbólguþrýsting síðar meir myndu vega þyngra.“

Í greiningunni segir að ímynda mætti sér að Seðlabankinn biði átekta til að byrja með varðandi áframhaldandi vaxtalækkunarferli, en að vaxtalækkunin yrði á móti hraðari þegar fyrstu áhrif veikari krónu á verðbólgu væru að baki.

‚Sem betur fer eru þó meiri líkur en minni á því að mögulegur mótvindur fyrir útflutningsgreinar verði tímabundinn og að íslenska hagkerfið sýni á næstu árum, eins og fyrri daginn, hversu sveigjanlegt það er, þegar og ef ytri eða innri áföll dynja á efnahagnum.“

Meðal þess sem spilar inn í breytta spá er tímabundinn samdráttur í álframleiðslu vegna framleiðsluskerðingar hjá Norðuráli, ládeyða í kísilmálmframleiðslu, útlit fyrir rýrari uppsjávarveiðar og áhrif falls flugfélagsins Play og hás raungengis krónunnar á ferðaþjónustuna.

„Við höfum því gert einfalda sviðsmynd sem gerir ráð fyrir talsvert mótdrægari þróun en í grunnspánni.“

Greininguna er hægt að skoða í heild á vef Íslandsbanka.