Utanríkismálanefnd Alþingis fékk kynningu á kafbátaeftirliti bandaríska sjóhersins í heimsókn sinni á öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli í vikunni.
Fram kemur í frásögn Landhelgisgæslunnar af heimsókninni að nefndin hafi fengið kynningu á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fari á öryggissvæðinu.
„Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs, og Marvin Ingólfsson, aðstoðarframkvæmdastjóri varnarmálasviðs, tóku á móti nefndinni ásamt Andra Júlíussyni, og Snorra Matthíassyni frá utanríkisráðuneytinu,“ segir í færslunni.
Fram kemur að meðfylgjandi mynd hafi verið tekin þegar nefndinni var kynnt kafbátaeftirlitið.