Í lok þriðja ársfjórðungs 2025 bjuggu 393.160 manns á Íslandi, 201.500 karlar, 191.450 konur og kynsegin eða annað voru 210. Í nýjum mannfjöldatölum Hagstofu Íslands kemur fram að landsmönnum hafi fjölgað um 1.350 á ársfjórðungnum.
„Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 250.800 manns en 142.360 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 69.670 eða 17,7% af heildarmannfjöldanum,“ segir þar.
Í tölum Hagstofunnar kemur jafnframt fram að á þriðja ársfjórðungi 2025 hafi fæðst 1.140 börn en 650 einstaklingar látist.
„Á sama tíma fluttust 860 einstaklingar til landsins umfram brottflutta.“
Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 70 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 930 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.
Þá kemur fram að fleiri karlar en konur hafi flust frá landinu.
