Vísbending um misnotkun námsmannaleyfa

Með frumvarpi um breytingar á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga er lagt til að afnema íslenskar sérreglur í flokki námsleyfa og samræma framkvæmd á við önnur Norðurlönd í tengslum við útgáfu atvinnu- og námsleyfa.

Þorbjörg Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra Obba
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra

Veitt hafa verið allt að 55 prósent fleiri námsmannaleyfi á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum frá árinu 2020, á hvern íbúa. Þá hefur umsóknum um námsmannaleyfi fjölgað verulega milli áranna 2024 og 2025 og sérstaklega frá ákveðnum ríkjum utan EES. Vísbendingar eru um að námsmannaleyfin séu nýtt sem leið inn í landið án þess að nám við íslenska háskóla sé hið eiginlega erindi.

Dómsmálaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingar á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Með frumvarpinu er lagt til að afnema íslenskar sérreglur í flokki námsleyfa og samræma framkvæmd á við önnur Norðurlönd í tengslum við útgáfu atvinnu- og námsleyfa.

„Þessar breytingar eru hluti af því að stemma stigu við misnotkun á dvalarleyfakerfinu í gegnum námsmannaleyfi sem þeir aðilar sem til þekkja eru sammála um að sé vandi. Á vorþingi mun ég svo leggja fram heildarendurskoðun á dvalarleyfakafla útlendingalaga,“ segir Þorbjörg Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Frumvarpið felur m.a. í sér eftirfarandi breytingar varðandi dvalarleyfi námsmanna:

  • Auknar kröfur um námsárangur – Námsmönnum verður gert að standa skil á fullnægjandi námsárangri í hvert sinn sem dvalarleyfi er endurnýjað. Þetta er í samræmi við framkvæmd á öðrum Norðurlöndum. Með frumvarpinu eru sömuleiðis gerðar nauðsynlegar breytingar á fyrirkomulagi atvinnuþátttöku námsmanna meðan á námi stendur.
  • Strangari skilyrði í kjölfar útskriftar – Lengd dvalarleyfis eftir útskrift verður stytt í eitt ár í stað þriggja og skilyrði dvalarleyfis er að viðkomandi hafi lokið BA námi eða námi á meistara- eða doktorsstigi. Til að koma í veg fyrir óeðlilega ásókn í námsleyfi verður sú krafa gerð að námsmenn hafi lokið í það minnsta háskólanámi á bakkalárstigi. Samkvæmt núgildandi lögum getur tveggja anna námsdvöl veitt möguleika á alls fjögurra ára atvinnuleyfi með litlum takmörkunum.
  • Réttur til fjölskyldusameiningar takmarkaður – Réttur námsmanna til fjölskyldusameiningar verður takmarkaður og samræmdur við framkvæmd á Norðurlöndum. Heimild til fjölskyldusameiningar mun aðeins taka til maka, sambúðarmaka og barna námsmanns sem er í fullu námi til bakkalárgráðu, meistaragráðu eða doktorsgráðu. Heimild til fjölskyldusameiningar við foreldra eldri en 67 ára verður felldur brott, en ekkert hinna Norðurlandanna skilgreinir foreldra námsmanna sem nánasta aðstandanda.