Lyfja veitir aðgang að sálfræðiþjónustu í appi

Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, segir markmiðið að veita faglega og einstaklingsmiðaða sálfræðiþjónustu þar sem biðtími sé stuttur og þjónustan aðgengileg á forsendum hvers og eins.

Þorvaldur Einarsson og Karen Ósk Gylfadóttir.
Þorvaldur Einarsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs Lyfju og Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju með sálfræðingum fyrirtækisins Mín líðan í Lyfju appinu. Mynd/Lyfja

Lyfja býður nú upp á aðstoð sálfræðings í gegnum Lyfju appið. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að fyrirtækið Mín líðan og sálfræðingar á þess vegum veiti þjónustuna. Mín líðan hafi frá árinu 2018 sérhæft sig í sálfræðiþjónustu á netinu og verið fyrsta íslenska fjarheilbrigðisþjónustan sem fengið hafi leyfi til reksturs frá Embætti landlæknis. 

Fram kemur að í Lyfju appinu séu aðgengilegar þrjár þjónustuleiðir sem auðveldu aðgengi skjólstæðinga að viðeigandi þjónustu.

„Í fyrsta lagi geta nú notendur Lyfju appsins tekið frítt stöðumat sem felst í örfáum spurningum með áherslu á helstu áhrifaþætti andlegrar heilsu, svo sem kvíða, streitu, þunglyndi og lágt sjálfsmat. Í kjölfarið er mælt með næstu skrefum og bendi niðurstöður til að tilefni sé til að kafa dýpra, geta skjólstæðingar svarað ítarlegri spurningalista.“

Í framhaldi af þessu sé hægt að bóka 15 mínútna ráðgjöf með löggildum sálfræðingi hjá Minni líðan sem fari yfir niðurstöðurnar og mæli með næstu skrefum. Þriðja leiðin sé svo að bóka hefðbundið 50 mínútna fjarviðtal.

Sagt auka aðgengi á landsbyggðinni

Haft er eftir Karen Ósk Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Lyfju, að markmiðið sé að veita faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem biðtími sé stuttur og þjónusta aðgengileg á forsendum hvers og eins.

Að auki sé hægt að framkvæma viðtöl óháð búsetu skjólstæðinga. Vísað er til svars heilbrigðisráðherra á Alþingi 2021 um að biðtími eftir viðtali við sálfræðing hjá heilbrigðisstofnunum hringinn í kringum landið væri allt að sex til sjö mánuðir og að af umræðunni að dæma undanfarið hafi ástandið ekki batnað mikið.

Karen Ósk segir þau hjá Lyfju hafi, líkt og flestir landsmenn, orðið vör við þörfina á auknum stuðningi við andlega heilsu, þá sérstaklega hjá ungu kynslóðinni.

„Við erum stolt af því að bjóða upp á einfalda leið í átt að lausn og gjaldfrjálst stöðumati frá sálfræðingum Mín líðan þar sem viðskiptavinir fá persónulegar, skýrar og hjálplegar upplýsingar út frá sinni stöðu. Oft er erfitt að vita hvert á að leita eða hvernig á að taka fyrstu skrefin og er þjónustan því tilvalinn byrjunarreitur. Einnig er okkur mikilvægt að fólk á landsbyggðinni geti nýtt sér þjónustuna þar sem hentar enda er það markmið okkar hjá Lyfju að mæta okkar viðskiptavinum þar sem þeir eru,“ segir hún. 


Þá er haft eftir Tönju Dögg Björnsdóttur, framkvæmdastjóra og sálfræðingi hjá Minni líðan, að hlutverk sálfræðistofunnar sé einna helst að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu, ásamt því að bjóða upp á árangursríka sálfræðimeðferð með tilliti til kostnaðar og tíma. Mikilvægt sé að Íslendingar fái meðferðarúrræði og þjónustu í samræmi við nýjustu tækni.

„Með samstarfinu við Lyfju fá nú fleiri tækifæri til að leita sér aðstoðar vegna sálræns vanda á faglegan og öruggan máta. Lyfja hefur lagt ríka áherslu á að búa til lausnir sem geta auðveldlega létt á heilbrigðiskerfinu og þannig lagt sín lóð á vogarskálarnar til að stuðla að betri lýðheilsu landsmanna. Við hjá Mín líðan tengjum vel við þetta markmið og vonum að þau sem til okkar leita, fái skjóta og góða lausn í átt að betri líðan,“ segir Tanja.

Sálfræðiþjónustan er sögð aðgengileg öllum yfir 18 ára aldri. Aðeins þurfi aðgang að Lyfju appinu og rafræna innskráningu.