Söfnun Góðgerðarfest, styrktarhátíðar Blue Car Rental, sem fór fram nýverið sló öll fyrri met. Tilgangur hátíðarinnar er sagður að safna fjármunum til góðra verkefna.
„Blue Car Rental, sem er eitt stærsta fyrirtækið í Reykjanesbæ, stendur að Góðgerðarfest en rúmlega 100 fyrirtæki og einstaklingar lögðu sitt af mörkum og söfnuðust yfir 30 milljónir króna,“ segir í tilkynningu.
Styrkirnir voru afhentir í höfuðstöðvum Blue sl. fimmtudag og fengu 25 ólík félög og verkefni styrk. Þeirra á meðal eru sögð Hæfingarstöðin, Íþróttafélagið NES, Minningarsjóður Ölla, Öspina, auk sérúrræði grunnskóla og dagdvalar aldraðra.
„Alls bárust yfir 60 styrktarumsóknir frá verðugum verkefnum en í ár var lögð sérstök áhersla á verkefni fyrir einstaklinga með auknar stuðningsþarfir og félög sem vinna í þágu barna.“
Haft er eftir Magnúsi Sverri Þorsteinssyni, forstjóra Blue Car Rental, að Góðgerðafest byggi á samstöðu sem skili sér í raunverulegum umbótum á Suðurnesjum og víðar.
Hann segir að markmiðið sé að virkja nærumhverfið, efla tengsl og beina fjármunum þangað sem þeirra er mest þörf.
„Við erum ótrúlega stolt af þessari hátíð. Það er frábært að geta stutt þessi verkefni og séð áhrif þeirra með eigin augum. Hver króna skiptir máli fyrir þessi félög og samtök.“
Íslenska bílaleigan Blue er sögð með vinsælustu bílaleigum landsins. Fyrirtækið hafi velt rúmum sex milljörðum króna í fyrra og stefni á áframhaldandi vöxt á þessu ári.

