Þrettán börn og fjölskyldur fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair

Hópmynd við afhendingu ferðastyrks Vildarbarna.
Hópmynd við afhendingu ferðastyrks Vildarbarna. Mynd/Icelandair

Þrettán börn og fjölskyldur þeirra, samtals um 60 manns, fengu nú fyrsta vetrardag afhentan ferðastyrk úr sjóði Vildarbarna Icelandair.

Afhendingin fór fram í Icelandair húsinu í Hafnarfirði, að því er fram kemur í tilkynningu.

Sjóðurinn er sagður á sínu tuttugasta og öðru starfsári og frá upphafi hafi alls yfir 800 fjölskyldur ferðast á vegum hans. Úthlutunin nú er sú fertugasta í röðinni.

„Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við sérstakar aðstæður, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð til útlanda,“ segir í tilkynningu.

Í hverjum styrk felist skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess. Allur kostnaður sé greiddur – flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óski sér.

Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarin ár afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.

„Það er okkur hjartans mál að halda áfram að styðja við Vildarbarnasjóðinn og gera draumaferðir barna og fjölskyldna þeirra að veruleika,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Sjóðurinn hefur notið ómetanlegs stuðnings frá viðskiptavinum, fyrirtækjum og einstaklingum í gegnum árin og við erum afar þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem við höfum fengið frá upphafi. Það er ekki sjálfsagt að sjóður sem þessi starfi samfleytt í svo langan tíma en það er að þakka öllum þeim sem hafa lagt sjóðnum lið, stjórn og starfsfólki sjóðsins sem hafa unnið frábært starf í gegnum árin.“