Atvinnuleysi dróst saman á milli ára

Atvinnuleysi dróst saman um 1,3 prósentustig milli ára samkvæmt mælingu Hagstofunnar og hlutfall starfandi hækkaði um 0,6 prósentustig.

Mynd/Campaign Creators á Unsplash

Atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára var 3,2 prósent í september síðastliðnum, samkvæmt nýbirtri mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands.

„Fjöldi atvinnulausra var um 7.500. Hlutfall starfandi var 78,4%, sem samsvarar tæplega 228.200 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81% eða um 235.700 manns á vinnumarkaði,“ segir í samantekt Hagstofunnar.

Samanborið við september í fyrra dróst atvinnuleysi saman um 1,3 prósentustig, hlutfall starfandi jókst um 0,6 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 stig.

„Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir september 2025 mældist atvinnuleysi 3,7%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 78,7% og atvinnuþátttaka 81,8%.“

Þá kemur fram að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hafi dregist saman um tvö prósentustig á milli ágúst og september, hlutfall starfandi hækkaði um 0,9 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkað um 0,4 prósentustig.