Alls söfnuðu Krónan og viðskiptavinir, í samstarfi við UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, tólf milljónum króna í neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza.
Krónan bauð fólki að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín og svo jafnaði fyrirtækið hvert framlag, krónu á móti krónu. Fram kemur í tilkynningu að söfunin renni óskert til neyðaraðstoðar á Gaza þar sem UNICEF vinni að því veita íbúum aðstoð, með sérstaka áherslu á börn.
Haft er eftir Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, að að framlagið sé mannúðarstarfi UNICEF afar mikilvægt, því á svæðinu ríki mikil neyð.
„Framundan er stærsta mannúðaraðgerð sögunnar þar sem UNICEF leggur nótt við nýtan dag að tryggja börnum svæðisins langþráða næringu, hreint vatn, lyf, hlý föt og skjól. Þá bíður okkar einnig að koma skólagöngu þeirra aftur af stað eftir tveggja ára hlé og veita sálfélagslegan stuðning. Þetta kostar mikið fjármagn og því ómetanlegt að njóta þess vogarafls sem Krónan og viðskiptavinir hennar hafa lagt til verkefnisins. Saman erum við sterkari,“ segir Birna.
Þá er haft eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóri Krónunnar, að viðtökur viðskiptavina hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum.
„Viðbrögðin sýna hversu miklu máli samstaða skiptir þegar á reynir. Á aðeins tíu dögum söfnuðust 12 milljónir króna, sem segir sitt um samhug og viljann til að láta gott af sér leiða. Við erum gífurlega þakklát þeim viðskiptavinum sem tóku þátt í þessu með okkur,” segir hún.