Tuttugasta október ár hvert er alþjóðlegi tölfræðidagurinn. Eðlilega vekur Hagstofan athygli á deginum, en hlutverk hennar að halda utan um hvers konar tölfræði svo byggja megi á henni í margvíslegri opinberri áætlanagerð.
Tilgangurinn með því að halda daginn hátíðlegan er sagður að vekja athygli á mikilvægi hagtalna fyrir samfélög, efnahagslíf og ákvarðanatöku og þema dagsins í ár að allir hafi aðgang að áreiðanlegum hagtölum og gögnum.
Púkinn heimsækir hagstofuna reglulega og veltir stundum fyrir sér hvort skorti á að það geri fleiri.
Til dæmis þegar fyrir ætti að liggja með fimm til sex ára fyrirvara stærð fyrstu árganga í grunnskóla og kannski tveggja ára fyrirvara stærð árganga í leikskóla. Samt virðist óhægt um vik að gera ráð fyrir þjónustu við þennan fyrirliggjandi fjölda og bregðast við í tíma.
Annars er aðaltilgangur heimsókn Púkans oftast að nota verðlagsreiknivél Hagstofunnar, sem hjálpar honum að setja hlutina í samhengi þegar spjallað er um verðlag.
Í krónuhagkerfinu, þar sem verðbólga er mikil og viðvarandi, er slík hjálpartæki nauðsynleg ef ræða á hluti á borð við tilgang verðtryggingar, eða bara hvernig þróun verðlags hefur í rauninni verið, ekki bara að breytingin á krónutölunni á einhverju árabili.
Sú breyting segir lítið um hvernig hlutirnir hafa þróast í raun og sann.