Gert er ráð fyrir skertri starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins föstudaginn 24. október næstkomandi vegna boðaðs kvennaverkfalls. Fram kemur í tilkynningu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að heilsugæslustöðvar verði opnar, en komi þennan dag eingöngu til með að sinna bráðum erindum.
Fjölmörg samtök kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks hafa boðað til kvennaverkfalls næstkomandi föstudag. Konur og kvár eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf og taka þátt í skipulögðum viðburðum.
„Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er um 1.000 talsins, þar af um 86 prósent konur. Reikna má með að verulegur hluti starfsfólks heilsugæslunnar muni leggja niður störf þennan dag,“ segir í tilkynningu.
Fram kemur að komið verði til móts við starfsfólk vegna boðaðs kvennaverkfalls eins og hægt sé.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins muni tryggja að nauðsynlegri þjónustu verði haldið gangandi svo öryggi fólks eða heilsu verði ekki stefnt í hættu.
„Heilsugæslustöðvar verða opnar en munu eingöngu sinna bráðum erindum, auk þess sem nauðsynleg lyf verða endurnýjuð. Ekki má reikna með að hægt verði að sinna verkefnum sem ekki teljast bráð þennan dag.“
Lágmarksmönnun er sögð verða á Upplýsingamiðstöð HH þennan dag. Miðstöðin svari bráðum erindum í síma 1700 og á netspjalli Heilsuveru, en vegna lágmarks mönnunar megi búast við lengri bið eftir þjónustu.
Þá muni heimahjúkrun Heilsugæslunnar, sem veiti þjónustu í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, forgangsraða verkefnum þennan dag.
„Heimsóknum sem ekki mega bíða verður sinnt en mögulegt er að fresta þurfi heimsóknum sem geta beðið.“
Heilsugæslan upplýsir jafnframt að ekki verði dregið af launum starfsfólks vegna þátttöku í verkfallinu. Það er sagt í samræmi við tilmæli frá skrifstofu kjara- og mannauðsmála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
„Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun leita leiða til að konur og kvár sem ekki geta tekið þátt í verkfallinu geti með öðrum hætti sýnt samstöðu með kröfum dagsins.“