Jón Sigurðsson stjórnarformaður Samherja hf. bendir á að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru lítil í alþjóðlegum samanburði, þar sem þau keppa um sölu sjávarafurða. Mikilvægt sé að hafa þetta í huga því í umræðu á Íslandi er stærð íslenskra fyrirtækja hreinlega talinn löstur. Lögin kveði á um ákveðin stærðarmörk. Þetta kemur fram í viðtali við Jón sem birtist á heimasíðu Samherja.
Í þessu rekstrarumhverfi verði einfaldlega að leita allra leiða til að gera reksturinn sem skilvirkastan, meðal annars með stöðugri framför í tækni og vöruþróun. Það þurfi útsjónarsemi og fjárfestingar til að gera verðmæti úr sjávarauðlindinni og tryggja þar með samkeppnishæfni. Stærri fyrirtæki séu líklegri en þau minni til að hafa burði og getu til að ráðast í stórar fjárfestingar, svo sem endurnýjun skipa og landvinnslu.
„Þegar slíkar ákvarðanir eru teknar þarf viss fyrirsjáanleiki að vera til staðar, annars er hætta á að stjórnendur fyrirtækjanna haldi að sér höndum og geri sem minnst. Núna er til dæmis uppi sú staða að endurnýjun skipaflotans er ekki nógu mikil, flotinn er einfaldlega að eldast. Þetta getur orðið til þess að verðmætasköpun verður minni, markmiðum í loftslagsmálum verður síður náð og svo framvegis. Stjórnvöld verða sem sagt að hafa ákveðinn skilning á atvinnugreininni og forðast eftir mætti að skapa óþarfa óvissu,“ segir Jón Sigurðsson.
Jón segir að helstu ógn sjávarútvegsins megi rekja til umhverfismála í víðum skilningi. Þess vegna skipti hreinleiki lands og sjávar höfuðmáli. Sjávarútvegsfyrirtækin taki hlutverk sitt alvarlega sem framleiðendur matvæla, þannig hafi greinin dregið verulega úr olíunotkun en vissulega sé alltaf hægt sé að gera enn betur. Hann nefnir sem dæmi að fiskimjölsverksmiðjur hafi verið rafvæddar en á sama tíma fáist ekki afhent rafmagn.
Staðreyndin sé að íslenskur fiskur er veiddur með sjálfbærum hætti og hefur mun minna kolefnisspor en fiskur frá öðrum löndum.