Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, varar stjórnvöld við að taka upp óbreytta reglugerð Evrópusambandsins sem hefur það að markmiði að draga úr umbúðum, auka endurvinnslu og styðja við hringrásarhagkerfið.
Með að innleiða reglugerðina óbreytta standa söluaðilar frammi fyrir mikilli kerfisbreytingu og útfærslan, sem skýrð sé á hundruðum blaðsíðna af tæknilegum skilyrðum, sé flókin og skilyrðin oft erfið að túlka.
Í ljósi EES-samningsins mun þessi reglugerð líklega verða tekin upp hér á landi. Það kallar á verulega aðlögun af hálfu atvinnulífsins og þá sérstaklega fyrir framleiðslufyrirtæki og verslun, með tilheyrandi áhrifum á neytendur og aukinn kostnað.
Sem dæmi nefndir Guðrún í grein sinni, sem birtist í Viðskiptablaðinu í vikunni, að bannaðar verði umbúðir yrir ferska ávexti og grænmeti undir 1,5 kg, einnota umbúðir fyrir mat og drykki sem neytt er á staðnum, og marglaga plast sem er svo blandað að það er nær ómögulegt að endurvinna.
Einnig er að finna skilyrði að 10% af sölusvæði verslana yfir 400 fermetra verði undir áfyllingarstöðvar.
Þar eiga neytendur að geta fyllt á vörur eins og morgunkorn, pasta, sjampó og sápur.
Guðrún segir að taka þurfi tillit til raunverulegrar hegðunar neytenda og getu verslana til að takast á við umstang og kostnað vegna lausna þar sem neytendur virðast hafa takmarkaðan áhuga. „Ég hef áhyggjur af því að þessi grein reglugerðarinnar muni ekki skila tilætluðum árangri á aðeins fjórum árum, nema með mun meiri hvötum, einföldun regluverks og djúpstæðum breytingum á neysluvenjum almennings,“ skrifar Guðrún.
Verslanir taki aftur við fjölnota umbúðum
Einnig eiga verslanir að sjá til þess að 10% af þeim drykkjarvörum sem þær selja séu í endurnýtanlegum umbúðum árið 2030 og 40% árið 2040. Í sömu grein er kveðið á um að verslanir skuli geta tekið við fjölnota umbúðum sem þær hafa sett á markað og sjá til þess að skilagjald sé endurgreitt.
Með öðrum orðum eigum við fara aftur til þess tíma þegar tómum gosflöskum var skilað í sjoppur. Þetta hljómar mögulega einfalt á blaði en felur í sér umtalsverðar breytingar á daglegum rekstri verslana. Það kallar á sérstakt pláss fyrir móttöku og geymslu, kerfi fyrir skráningu og endurgreiðslur, auk strangra hreinlætisviðmiða. Á sama tíma hafa íslenskir neytendur vanist því að nýta endurvinnslustöðvar með góðum árangri. Það er ekki sjálfgefið að færa það hlutverk yfir á matvöruverslanir en þær eru ekki hannaðar til að vera móttökustöðvar fyrir notaðar umbúðir.