Sýn skattlagt en RÚV sleppur: „Augljós mismunum“

Heildarframlag RÚV til íslenskrar menningar og dagskrárgerðar, þar með talið framleiðsla á fréttum, íþróttum og skemmtiefni, er metið sem fullnægjandi og nægjanleg ástæða til undanþágu.

Ríkisútvarpið RÚV
Útvarpshúsið Efstaleiti í Reykjavík.

Ríkisútvarpið er undanþegið greiðslu sérstaks menningarframlags, sem kveðið er á um í frumvarpi laga um menningarframlag streymisveitna. Aðrir fjölmiðlar, sem eru með ársveltu yfir 20 milljónum króna eða áskrifendafjölda yfir 1% af fjölda heimila á Íslandi, þurfa að greiða menningarframlag í formi skatts sem nemur 5% af heildartekjum af sölu áskrifta.

RÚV sleppur við þennan skatt með þeim rökum að nú þegar hvíli víðtækar skyldur á RÚV samkvæmt lögum og þjónustusamningi við ríkið. Páll Ásgrímsson, lögmaður Sýnar, segir þessi rök afhjúpa augljósa mismunum í framvarpinu.

„Heildarframlag RÚV til íslenskrar menningar og dagskrárgerðar, þar með talið framleiðsla á fréttum, íþróttum og skemmtiefni, er metið sem fullnægjandi og nægjanleg ástæða til undanþágu. Á sama tíma er sambærileg framleiðsla hjá einkareknum miðli, á borð við Sýn, metin einskis virði og undanskilin þeim fjárfestingum sem geta leitt til ívilnunar,“ segir í umsögn Sýnar um frumvarpið.

„Hvers vegna gildir einn mælikvarði fyrir RÚV en annar fyrir Sýn? Ef framleiðsla íþrótta- og skemmtiefnis telst hluti af almannaþjónustuhlutverki RÚV, hlýtur slík framleiðsla einnig að hafa menningarlegt gildi þegar hún er innt af hendi af einkareknum aðila. Að undanskilja opinbera fjölmiðilinn á þeim forsendum að hann sinni almannaþjónustu, en leggja um leið skatt á einkarekinn aðila sem framleiðir sambærilegt efni í þágu íslenskrar menningar, raskar samkeppni með augljósum hætti.“

Páll segir að Sýn hafi vakið máls á, m.a. með hliðsjón af rekstri á öflugri fréttastofu og framleiðslu á öðru menningarefni með almenna skírskotun, að félagið geti verið útnefnt sem félag í almannaþjónustu. Vísað hefur verið til fordæmis TV2 í Noregi í því samhengi.

„Rennir þetta enn frekari stoðum undir hve rík samkeppnisröskun leiðir af þröngri skilgreiningu á innlendu efni í frumvarpinu á sama tíma og almannaþjónustuhlutverk Sýnar er ekki viðurkennt,“ segir í umsögninni.