Staðall um sjálfbæra skógrækt hefur verið gefinn út á vef Staðlaráðs. Notendur þurfa ekki að kaupa staðalinn heldur má hlaða honum niður án endurgjalds.
Fram kemur á vef Lands og skógar að hér sé um að ræða fyrsta íslenska staðalinn þar sem settar séu samræmdar kröfur og leiðbeiningar fyrir sjálfbæra skógrækt hér á landi.
„Formlegt heiti staðalsins er ÍST 95:2025 – Sjálfbær skógrækt. Markmiðið með honum er að ýta undir ábyrgari nýtingu lands og náttúruauðlinda, efla fagmennsku í skógrækt og tryggja að þróun greinarinnar verði í samræmi við sjálfbærnismarkmið Íslands,“ segir í umfjöllun Lands og skógar.
Markar tímamót í skógrækt á Íslandi
Vitnað er til umfjölluna á vef Staðlaráðs í byrjun vikunnar um að staðallinn sé afrakstur víðtæks samráðs og samstarfs í tækninefnd um sjálfbæra skógrækt (TN-SSK), þar sem meðal annars hafi komið saman fulltrúar frá viðeigandi stofnunum ríkisins, loftslagsverkefnum í skógrækt og einkafyrirtækjum.
„Með þessu fjölbreytta samstarfi þykir tryggt að staðallinn endurspegli bæði stefnumótandi sjónarmið stjórnvalda og hagnýta reynslu þeirra sem starfa við skógrækt og landnýtingu á vettvangi.“
Tilkoma staðalsins er sögð marka ákveðin tímamót í skógrækt á Íslandi því með honum sé kominn sameiginlegur rammi um gæði, ábyrgð og fagmennsku í fagi sem gegni vaxandi hlutverki í samtímanum, bæði í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og við nýtingu lands.
„Staðallinn er verkfæri sem bæði er í takti við stefnu stjórnvalda og nýtist þeim vel sem standa að skógrækt og starfa að henni.“
Annar staðall um nýskógrækt í farvatninu
Land og skógur bendir á að þó að staðallinn nái ekki sérstaklega til nýskógræktar þá nýtist engu að síður margir þættir hans einnig þar. En með nýskógrækt er átt við ræktun skógar á landi þar sem enginn skógur sé fyrir eða landnotkun hafi verið breytt.
„Til að fylla í þetta skarð er nú á teikniborðinu sérstakur staðall um nýskógrækt sem er að vænta í kjölfar hins. Markmiðið er að þar með verði komin heildstæð umgjörð um skógrækt á Íslandi, allt frá því að ræktun nýs skógar hefst þar til kemur að endurnýjun skógar.“