Búsetukjarni Félagsbústaða fékk Grænu skófluna

Auk aðalviðurkenningar var í fyrsta sinn veitt viðurkenning Grænu skóflunnar vegna endurnýjunar húsnæðis, en hana hlaut Stöng í Þjórsárdal.

Háteigsvegur 59 í Reykjavík.
Háteigsvegur 59 í Reykjavík. Mynd/Félagsbústaðir

Græna skóflan, viðurkenning fyrir mannvirki sem byggt hefur verið með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum, var afhent á Degi Grænni byggðar í Iðnó, 8. október síðastliðinn. 

„Í ár hlaut Háteigsvegur 59 verðlaunin. Byggingin er búsetukjarni í eigu Félagsbústaða og er hönnuð af Arnhildi Pálmadóttur arkitekt,“ segir í tilkynningu frá Grænni byggð, sem veitir viðurkenninguna.

Fram kemur að verðlaunin hafi verið afhent á þéttsetinni árlegri ráðstefnu Grænni byggðar, þar sem þátttakendur hafi hlýtt á fyrirlestra um margvíslega þætti vistvæns byggingariðnaðar og fram hafi farið pallborðsumræður um vellíðan notenda í byggðu umhverfi. 

Í mati dómnefndar segir meðal annars að bygging Háteigsvegar 59 hafi sýnt fram á að jafnvel innan núverandi reglu- og lagaumhverfis sé auðveldlega hægt að draga úr kolefnisspori og endurnýta ýmis byggingarefni samhliða alhliða hönnunargrunnreglum á farsælan hátt.

„Sé Háteigsvegur borin saman við sambærilega byggingu, er kolefnisspor verkefnisins um 50 prósent lægra. Háteigsvegur, leggur áherslu á aðgengi fyrir alla, hagkvæmni, notkun hágæða og heilnæmra efna, auk þess að skapa heimilislegt umhverfi,“ segir þar jafnframt.

Frá afhendingu Grænu skóflunnar. Sigrún Árnadóttir í pontu.
Frá afhendingu Grænu skóflunnar. Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, í pontu. Mynd/Ástrós Steingrímsdóttir

Frekari upplýsingar um Háteigsveg 59 og byggingarsögu hússins er að finna á vef Félagsbústaða.

Þá kemur fram að í ár hafi í fyrsta sinn einnig verið afhent viðurkenning fyrir mannvirki sem hafi verið endurnýjuð með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum. Það sé gert til að efla endurnýjun núverandi mannvirkja.

Fyrsti handhafi þessarar nýju viðurkenningar er Stöng í Þjórsárdal.

„Menningarleg og söguleg þýðing þessa mannvirkis sameinast framtíðarsýn, þegar horft er til umhverfislegra þátta sjálfbærnis og má þá nefna atriði eins og að endurnýta eins mörg byggingarefni og hluti og hægt er en núverandi burðavirki er frá 1957, hanna bygginguna þannig að auðvelt sé að taka hana niður, velja heilnæm og endurvinnanleg efni og einnig að hugsa um að draga úr orkufari í allri notkun byggingarinnar,“ segir í mati dómnefndar.

Frekari upplýsingar um endurbætur á Stöng má finna á vef Sp(r)int-studio.

Frekari upplýsingar um Grænu skófluna er svo að finna á vef Grænni byggðar.