Landaður afli nam tæplega 131 þúsund tonni í september á þessu ári, samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Aflinn jókst um 34 prósent á milli ára.
„Botnfiskafli dróst saman um 14% á milli ára en uppsjávarafli jókst verulega og var rúmlega 98 þúsund tonn sem samsvarar um 65% aukningu.“
Munurinn er minni þegar horft er til aflatalna á ársgrundvelli, en á tímabilinu frá október 2024 til september 2025 var landað samtals 1.039 þúsund tonnum.
Það segir Hagstofan vera fjórum prósentum meiri afla en á sama tímabili ári fyrr.