Keyptu gömul snjalltæki fyrir 20 milljónir króna

Á árinu 2024 greiddi ELKO viðskiptavinum 20 milljónir króna fyrir gömul tæki þegar 7.539 snjalltæki voru í samstarfi við endurvinnslufyrirtækið Foxway send í hringrásarhagkerfi raftækja.

Raftækjaúrgangur, e-waste
Raftækjaúrgangur. Mynd/Eugenia Pan á Unsplash

Síðustu ár hefur verið stöðugur vöxtur í móttöku notaðra raftækja, að því er fram kemur í tilkynningu ELKO í tilefni af Alþjóðlegum degi raftækjaúrgangs, sem er í dag 14. október. Tækjum er þá komið í hringrásarhagkerfið og þau ýmist endurunnin eða endurnýtt á nýjum mörkuðum.  

Í tilefni dagsins bendir ELKO á möguleika fólks til að koma gömlum snjalltækjum í verð.

„Boðin er greiðsla fyrir snjallsíma, spjaldtölvur, snjallúr, fartölvur og leikjatölvur sem skilað er inn. Tækin eru verðmetin eftir ástandi þegar komið er með þau í verslunina, en hærra verð fæst greitt fyrir tæki í nothæfu ástandi,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Fram kemur að á árinu 2024 hafi viðskiptavinum verið greiddar 20 milljónir króna fyrir gömul raftæki þegar 7.539 snjalltæki hafi verið send í hringrásarhagkerfi raftækja í samstarfi við endurvinnslufyrirtækið Foxway í Eistlandi.

„Aukning frá fyrra ári, þegar keypt voru 5.247 tæki, nam 43,7 prósentum. Þá var um að ræða ríflega þreföldun frá 2021 þegar tekið var við 2.419 tækjum. Þá er í verslunum ELKO jafnframt að finna endurvinnsluskápa þar sem tekið er við flestum minni raftækjum, rafhlöðum, snúrum og aukahlutum.“

Haft er eftir Óttari Erni Sigurbergssyni, framkvæmdastjóra ELKO, að fyrirtækið hvetji alla til að koma gömlum raftækjum í ábyrga endurvinnslu. Þá sé ekki verra ef finnist tæki sem fá megi greitt fyrir.

Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO.
Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO.

„Við erum afar stolt af þeim vexti sem við sjáum og viljum vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgum viðskiptaháttum og gagnsæi. Við erum spennt fyrir því að halda áfram að auka framboð á notuðum vörum og fræða almenning um sjálfbærar neysluvenjur þegar það kemur að raftækjum,“ segir hann.

Þá kemur fram að ELKO hafi, fyrst raftækjaverslana á Íslandi, tekið upp birtingu á áætluðu kolefnisspori allra vara í vefverslun sinni.

Þar er sagt um að ræða mat á losun kolefnis í andrúmsloftið við framleiðslu vörunnar og til enda líftíma.

„Magnið er reiknað út frá þyngd vöru með umbúðum og kolefnisspori tiltekinna vöruflokka út frá svonefndum DEFRA-losunarstuðlum breska umhverfisráðuneytisins.“

ELKO segist jafnframt hafa haft forgöngu um gagnsæi og aukna upplýsingagjöf um vörur sínar, svo sem með birtingu verðsögu allra hluta á vef sínum.

Þar hafi nú líka bæst við upplýsingar um framleiðsluland allra hluta, aðgengi að varahlutum í árum og aðgengi að varahlutum þar sem það er gefið upp. Með því vilji verslunin tryggja upplýst val neytenda og efnahagslegt gagnsæi í viðskiptum.

Tölva og skjár á borði.
Á skjánum eru vöruupplýsingar þar sem kolefnisspor kemur fram. Mynd/ELKO