Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi hefur blásið til sóknar í neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza. Í tilkynningu segir að þetta sé gert í því ljósi að nú hilli undir von um frið á svæðinu og hver mínúta skipti máli.
Fram kemur að vegna átaksins hafi Krónan ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi við innkaup í verslunum fyrirtækisins næstu daga og að Krónan komi til með að jafna hvert framlag, krónu á móti krónu.
Söfnunin er sögð renna óskert til aðstoðar barna á Gaza. Söfnunin er þegar hafin og tendur yfir til sunnudagsins 19. október. Viðskiptavinum Krónunnar er boðið að bæta við 500 krónum eða hærri upphæð við lok innkaupa í öllum verslunum Krónunnar.
Haft er eftir Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, að barnahjálpin sé þakklát fyrir að enn á ný stigi Krónan upp til að standa með réttindum barna sem búi við neyð.
„Við vitum að framtakið mun mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum Krónunnar og vonum að þetta verði öllum hvatning að leggja sitt af mörkum, því þegar kemur að mannúðaraðstoð á Gaza skiptir hver mínúta máli. UNICEF er í þeirri stöðu að geta skipt sköpum í lífi barna sem búa við hörmulega neyð og til að mæta þörfinni þarf fjárhagslegan stuðning og því skiptir hver króna máli,“ segir Birna.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir í tilkynningunni að það sé Krónunni bæði ljúft og skylt að nýta lausnir sínar til að safna fyrir jafn þörfu málefni og þessu, og á sama tíma leggja sitt af mörkum til aðstoðar barna í neyð.
„Það er erfitt að setja sig í spor barna sem búa við hungur, ótta og óöryggi dag eftir dag og nú eru yfir 130 þúsund börn undir fimm ára aldri á Gaza alvarlega vannærð. Við í Krónunni viljum leggja okkar af mörkum með því að virkja samfélagið okkar til góðra verka. Með hjálp viðskiptavina getum við staðið saman og látið hvert framlag vega tvöfalt – krónu á móti krónu,“ segir Guðrún.