Íbúar á Íslandi verða 550 þúsund talsins árið 2075 samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofu Íslands. Ekki er útilokað að þróunin verði enn hraðari.
„Íbúum á Íslandi fjölgar úr 389 þúsund árið 2025 í 450-700 þúsund á næstu 50 árum. Samkvæmt hæsta spáafbrigði myndi mannfjöldi á Íslandi ná 500 þúsund íbúum árið 2037.“
Mannfjöldaspáin gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
- Hlutfall íbúa á vinnualdri (16 til 74 ára) mun lækka úr 74% árið 2025 í 70% árið 2075 samkvæmt miðgildi spárinnar.
- Eftir 2052 verður elsti aldurshópurinn (eldri en 65 ára) fjölmennari en sá yngsti (yngri en 20 ára) samkvæmt miðgildi spárinnar.
- Miðgildi aldurs landsmanna var 37 ár árið 2025. Gert er ráð fyrir að það verði 52 ár árið 2075 samkvæmt miðspá en mun lægra samkvæmt lægstu spá eða 48 ár. Þá verður miðgildið 53 ár árið 2075 ef miðað er við hæstu spá.
Í miðgildi gerir spá Hagstofunnar ráð fyrir að frjósemishlutfall verði 1,4 barn á hverja konu (á aldrinum 13-55 ára) árið 2075 eða á bilinu 1,3 til 1,5 börn með 90 prósenta líkum.
„Til samanburðar var meðalfrjósemishlutfall innan Evrópusambandsins 1,4 börn á hverja konu árið 2022.“
Þá gerir miðgildi spárinnar ráðfyrir að lífslíkur kvenna aukist og verðu 89 ár árið 2075, samanborið við 84 ár á síðasta ári. Lífslíkur karla aukast á sama tíma úr 81 ári í 84 ár.

„Öldrun þjóðarinnar stafar af minnkandi frjósemi og auknum lífslíkum. Þessi þróun er þó hægari á Íslandi en í ríkjum ESB vegna ungs aldurs erlendra ríkisborgara sem flytjast til landsins og hás frjósemishlutfalls miðað við meðaltal innan sambandsins,“ segir Hagstofan.
Bent er á að miðgildi aldurs í ríkjum Evrópusambandsins hafi veirð 44 ár árið 2021, en til samanburðar sé ekki gert ráð fyrir að því gildi verði náð hér á landi fyrr en árið 2050 samkvæmt miðspá stofnunarinnar.