Aldrei fleiri staðið í skilum

Vanskil fyrirtækja hafa aldrei verið minni en það sem af er ári eða 14,5%. Þau voru 15,1% á sama tíma í fyrra og 20,8% í september 2019.

forstjóri Motus
Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus. Mynd/Motus

Það sem af er ári hefur dregið úr vanskilum bæði einstaklinga og fyrirtækja. Nú er svo komið að þau hafa aldrei verið minni samkvæmt samantekt Motus. Það er því ýmislegt sem bendir til þess að vanskil hafi náð nýju jafnvægi – og að það jafnvægi sé töluvert lægra en það var fyrir heimsfaraldur. 

Í pistli á heimasíðu Motus er farið yfir þróun vanskila einstaklinga og fyrirtækja. Hlutfall krafna í vanskilum hjá einstaklingum í lok september var 11%, samanborið við 11,9% á sama tíma í fyrra og 16,3% árið 2019. „Alvarleg vanskil einstaklinga, þar sem vanskil hafa staðið yfir lengur en 45 daga, eru sömuleiðis með minnsta móti og hafa aðeins einu sinni mælst lægri. Það sem af er ári eru þau einungis 1,3% miðað við 1,5% á sama tíma í fyrra og 2,44% á sama tíma 2019,“ segir í greiningu Motus.

Heimild: Motus.is

„Við erum almennt að standa betur í skilum en áður, sem er athyglisvert í ljósi þess að verðbólga hefur verið viðvarandi yfir markmiði Seðlabankans og vaxtastig hátt. Samhliða hefur einkaneysla aukist og sparnaður heimilanna vaxið,“ segir Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus, á LinkedIn.

Vanskil fyrirtækja lækkað

Vanskil fyrirtækja hafa aldrei verið minni en það sem af er ári eða 14,5%. Þau voru 15,1% á sama tíma í fyrra og 20,8% í september 2019. Alvarleg vanskil fyrirtækja eru sömuleiðis í lágmarki og það sem af er ári standa þau í 1,9% miðað við 2,5% á sama tíma í fyrra og 3,6% 2019. 

Vanskil hafa dregist saman í öllum geirum að undanskildum kröfum sem gefnar eru út af fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu og matvælaframleiðslu. Alvarleg vanskil hafa sömuleiðis lækkað umtalsvert í öllum geirum, að heilbrigðisþjónustu undanskilinni. Sjá töflu hér að neðan sem sýnir vanskil og alvarleg vanskil janúar-ágúst 2024 og 2025.

Erfitt er að sjá hvað veldur því að fólk og fyrirtæki standa nú betur í skilum en áður. Verðbólga er lengi búin að vera yfir markmiði Seðlabankans og vaxtastigið því hátt, en engu að síður er greiðsluhraði mun betri en hann var fyrir sex árum.