Íslensku menntaverðlaunin veitt í fjórum flokkum

Markmið Íslensku menntaverðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs.

Íslensku menntaverðlaunin
Merki Íslensku menntaverðlaunanna. Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum í næsta mánuði.

Greint hefur verið frá tilnefningum til Íslensku menntaverðlaunanna. Þau eru veitt árlega fyrir framúrskarandi skólastarf eða aðrar umbætur í menntamálum. Fimm eru tilnefnd undir liðnum kennarar og starfa ýmist við leik-, grunn-, eða framhaldsskóla.

„Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs,“ segir í sameiginlegri frétt innviðaráðuneytisins og mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Þar kemur jafnframt fram að sem fyrr verði veitt verðlaun í fjórum flokkum: Fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, fyrir framúrskarandi kennslu, fyrir þróunarverkefni, og fyrir iðn- eða verkmenntun.

„Menntaverðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvemberbyrjun og þá verða auk þess veitt sérstök hvatningarverðlaun.“

Tilnefningarnar eru eftirfarandi:

Skólastarf eða menntaumbætur:

  • Leikskólinn Iðavöllur á Akureyri fyrir fjölþætt og markvisst þróunarstarf þar sem ríkir lausnamiðað viðhorf og stöðug viðleitni til umbóta. Skólanum er lýst sem lifandi og fjölmenningarlegu lærdómssamfélagi sem eflir réttlætisvitund og virkni nemenda.
  • Víkurskóli í Reykjavík fyrir skapandi þróunarstarf með áherslu á listir og nýsköpun. Skólinn leggur sérstaka áherslu á samþættingu námsgreina og teymiskennslu, og vinna nemendur ár hvert að fjölmörgum heildstæðum og þverfaglegum viðfangsefnum.
  • Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fyrir gróskumikið tónlistarstarf m.a. í samstarfi við listafólk á ólíkum sviðum. Hljómsveitin hefur árum saman staðið að metnaðarfullu tónlistarstarfi sem hefur skilað einstökum árangri.

Kennari

  • Gunnar Ásgeir Sigurjónsson framhaldsskólakennari á pípulagningabraut Tækniskólans – fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í kennslu.
  • Hjördís Óladóttir grunnskólakennari við Hrafnagilsskóla – fyrir skapandi og fjölbreytta kennsluhætti og hæfileika til að skapa frjótt, fallegt og örvandi námsumhverfi.
  • Ingibjörg Jónasdóttir leikskólakennari við leikskólann Rauðhól í Reykjavík – fyrir farsælt brautryðjendastarf við að efla áhuga barna á bókum og lestri.
  • Laufey Einarsdóttir grunnskólakennari í Sæmundarskóla – fyrir faglega og árangursríka stærðfræðikennslu með Boðorðin okkar í stærðfræði að leiðarljósi.
  • Örvar Rafn Hlíðdal íþróttakennari við Flóaskóla – fyrir framúrskarandi íþróttakennslu og eftirtektarverðan árangur í starfi. Skólinn hefur meðal annars unnið Skólahreysti tvisvar sinnum þrátt fyrir fámennan nemendahóp.

Þróunarverkefni

  • Gullin í grenndinni. Samstarfsverkefni leikskólans Álfheima og Vallaskóla á Selfossi um nám úti í náttúrunni sem hefur verið í stöðugri þróun og er nú fastur liður í starfi beggja skólanna.
  • Íslenskubrú Breiðholts. Samstarfsverkefni allra grunnskóla í Breiðholti sem miðar að því að efla kennslu fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku með markvissu samstarfi kennara skólanna.
  • Lítil skref á leið til læsis. Samstarfsverkefni leikskólans Grænuvalla og Borgarhólsskóla á Húsavík, þar sem starfsfólk beggja skóla vinnur saman að því að efla málörvun og læsi barna m.a. í samstarfi við sjúkraþjálfara sem metur fínhreyfingar og leiðbeinir eftir þörfum.

Iðn- eða verkmenntun

  • Fataiðndeild Tækniskólans fyrir metnaðarfulla og faglega kennslu sem byggir á einstaklingsmiðuðu námi og raunverulegum verkefnum sem nemendur leysa á eigin hraða.
  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum fyrir nýstárlega nálgun í námi í málm- og vélstjórnargreinum, þar sem hefðbundnu námi hefur verið umbreytt í verkefna- og atvinnutengt nám.
  • Unnar Þorsteinn Bjartmarsson grunn- og framhaldsskólakennari við Grunnskóla Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóla Vesturlands – fyrir að kveikja áhuga nemenda á öllum aldri á iðn- og verknámi.

Þá kemur fram að bakhjarlar Íslensku menntaverðlaunanna séu:

  • Embætti forseta Íslands
  • Mennta- og barnamálaráðuneytið
  • Innviðaráðuneytið
  • Samtök iðnaðarins
  • Félag um menntarannsóknir
  • Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum
  • Háskólinn á Akureyri
  • Háskóli Íslands
  • Kennarasamband Íslands
  • Listaháskóli Íslands
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Reykjavíkurborg
  • Samband íslenskra sveitarfélaga
  • Samtök áhugafólks um skólaþróun

Frekari upplýsingar um Íslensku menntaverðlaunin er svo að finna á vef Samtaka áhugafólks um skólaþróun